Í áramótaþætti Ísafoldar var Sómalíuhneykslið í Minnesóta í Bandaríkjunum til umræðu en Íris Erlingsdóttir fjölmiðlafræðingur býr þar. Jón Magnússon hrl. hafði einnig skrifað pistla um málið og kynnt sér það vel. Í veislu Trump hjónanna á gamlárskvöld á heimili þeirra í Mar-a-Lago hóf Bandaríkjaforseti ræðu sína með vísun til þessa hneykslis og lofaði viðstöddum og þjóðinni að farið yrði ofan í saumana á þessu hneykslismáli.
Trump sagði í ávarpi sínu:
„Getið þið ímyndað ykkur. Þeir stálu 18 milljörðum dala. Þetta er risavaxið svindl.. við ætlum að ná þessum peningum til baka. Fyrir utan það ætlum við eiga Frábært Nýtt Ár!“
Trump gagnrýndi sómalskan múslimskan þingmann demókrata, Ilhan Omar, harkalega í færslu á Truth Social og ítrekaði kröfu um brottvísun hennar. Hann kallaði Ilhan Omar „vanþakklátan tapara“ og „eina af mörgum svindlurum.“ Trump skrifaði:
„Stór hluti svindlsins í Minnesota, allt að 90%, eru af völdum fólks sem komið hefur ólöglega til lands okkar frá Sómalíu. Giftist hún virkilega bróður sínum? Slíkt lágkúrufólk gerir ekkert nema að skaða mikilleika landsins okkar. Sendum fólkið aftur þangað þaðan sem þau komu, til Sómalíu, kannski eitt það versta og spilltasta land sem til er í heiminum.“
