ESB-dómstóllinn: Innræta verður ungverskum börnum kynjahugmyndafræði LGBTQ+

Aðeins nokkrum dögum eftir að Viktor Orbán tapaði kosningunum ákvað ESB-dómstóllinn að Ungverjaland hafi brotið gegn lögum sambandsins þegar landið bannaði aðgang barna að hbtq-efni í skólum landsins. Núna er fyrirskipað að löggjöf Ungverja verði rutt úr vegi fyrir kynjaboðskap ESB.

Lögin frá 2021 takmarka eða banna það sem kallað er að stuðla að samkynhneigð og kynskiptingu í miðlum sem eru aðgengilegir börnum. Að mati dómstólsins brýtur löggjöf Ungverjaland gegn mörgum lögum ESB og „felur í sér sérstaklega alvarleg inngrip í mörg grundvallarréttindi“.

Þegar lögin voru samþykkt fyrir fimm árum sagði forseti Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, að „ungversku lögin væru skömm.“ Hún lofaði:

„að beita öllum heimildum framkvæmdastjórnarinnar til að tryggja að réttindi allra borgara ESB séu tryggð, óháð því hver maður er og hvar maður býr.“

Fráfarandi forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orbán, lýsir afstöðu ESB sem hbtq-áróðri og að Brussel hafi ekki getað beðið með að valta yfir lögin eftir valdaskiptin í Ungverjalandi.

Ríkisstjórn Viktor Orbáns vildi flytja Pride gönguna frá miðborg Búdapest yfir í afgirt svæði, þar sem þessar göngur innihalda oft gróf kynferðisleg atriði sem börn eiga ekki að þurfa að verða fyrir. Í göngunni í fyrra komu starfsmenn hinsegin hreyfinga víða að til að mótmæla Viktor Orbán.

Framkvæmdastjórnin fagnar dómnum

Ákvörðunin er í samræmi við fyrri laganiðurstöður og æðsti lagaráðgjafi dómstólsins heldur því fram að Ungverjaland hafi „verulega vikið frá fyrirmynd stjórnarskrárbundins lýðræðis.“

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fagnar dómnum. Eva Hrncirova, talskona framkvæmdastjórnarinnar, segir:

„Við fögnum tímamótaúrskurði dagsins frá dómstólnum … Þetta er í fyrsta sinn sem dómstóllinn kemst að slíkri niðurstöðu um brot gegn lykilákvæði sáttmálans um gildi ESB. Núna er boltinn hjá Ungverjalandi innan dómstólsins, það er undir ungversku ríkisstjórninni komið að framkvæma ákvörðunina. Framkvæmdavald ESB getur núna gripið til frekari aðgerða og krafist fjársektar ef Ungverjaland fylgir ekki dómnum.“

Meðal þeirra sem brugðist hafa við dómnum er Pavel Durov, stofnandi dulkóðuðu skilaboðaþjónustunnar Telegram: