Hafin er undirskriftasöfnun vegna lóðar við Suðurlandsbraut 76 vegna fyrirhugaðrar moskubyggingu. Sigfús Aðalsteinsson er ábyrgðarmaður söfnunarinnar sem finna má hér.
Við undirrituð krefjumst þess að Reykjavíkurborg endurskoði og afturkalli úthlutun lóðarinnar við Suðurlandsbraut 76 sem úthlutað var fyrir fyrirhugaða moskubyggingu, þar sem framkvæmdir hafa ekki hafist innan eðlilegs og ásættanlegs tíma frá úthlutun.
Í mörgum tilfellum gilda skilmálar um lóðaúthlutanir þar sem gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist innan ákveðins frests. Þegar slíkt dregst árum saman án sýnilegra framkvæmda er eðlilegt að borgaryfirvöld endurmeti ráðstöfun landsins með hliðsjón af jafnræði, skipulagsmarkmiðum og hagsmunum borgarbúa.
Við teljum mikilvægt að:
borgarlóðir séu nýttar með virkum hætti, sömu reglur gildi fyrir alla lóðarhafa, framkvæmdir hefjist innan þeirra tímamarka sem almennt eru gerðar kröfur um, og að borgin tryggi gagnsæi og jafnræði í meðferð lóðaúthlutana. Því er þess krafist að:
farið verði yfir skilmála úthlutunarinnar opinberlega, upplýst verði hvort skilyrði um framkvæmdatíma hafi verið uppfyllt og lóðin verði tekin til baka ef skilmálar hafa ekki verið efndir.
Listinn virkur til:
01.07.2026

Ábyrgðarmaður: Sigfús Aðalsteinsson
Skrifaðu undir áskorunina um afturköllun úthlutun lóðarinnar við Suðurlandsbraut 76
