Þorgerður Katrín gagnrýnd fyrir að leita aðstoðar erlendra vina til að hafa áhrif á ESB-umræðuna innanlands

Júlíus Valsson gagnrýnir heimsókn austurríska utanríkisráðherrans og segir hana sýna veikleika ESB-málstaðar ríkisstjórnarinnar sem leitar eftir stuðningi erlendis til að hafa áhrif á skoðun Íslendinga varðandi ESB.

Júlíus Valsson læknir og fullveldissinni gagnrýnir harðlega í nýjum pistli í Vísi tilraunir Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að afla stuðnings við ESB-aðild Íslands með því að fá erlenda stjórnmálamenn til landsins.

Tilefni pistilsins er heimsókn austurríska utanríkisráðherrans Beate Meinl-Reisinger, leiðtoga hins frjálslynda NEOS-flokks í Austurríki. Að mati Júlíusar sýnir heimsóknin að utanríkisráðherra sé farin að leita stuðnings „úr ótrúlegustu áttum“ eftir því sem nær dregur þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald ESB-viðræðna.

Umdeild í eigin heimalandi

Í pistlinum bendir Júlíus á að Meinl-Reisinger sé umdeildur stjórnmálamaður í Austurríki og hafi sætt gagnrýni vegna afstöðu sinnar til hlutleysis landsins. Hann segir stóran hluta austurrísku þjóðarinnar vilja halda í hlutleysisstefnu landsins, á meðan ráðherrann hafi talað fyrir aukinni evrópskri varnarsamvinnu og nánari tengslum við stefnumótun Evrópusambandsins á sviði öryggis- og varnarmála.

Hann nefnir jafnframt að ráðherrann hafi sætt gagnrýni vegna afstöðu sinnar í málefnum Mið-Austurlanda, vegna skipana á embættismönnum og vegna ráðstöfunar opinbers fjár til alþjóðlegra verkefna á sama tíma og þrýstingur sé á ríkisfjármál Austurríkis.

Táknmyndapólitík í stað málefnalegrar umræðu

Júlíus telur að heimsóknin sé hluti af víðtækri stefnu ríkisstjórnarinnar um að skapa mynd af alþjóðlegum stuðningi við ESB-aðild Íslands. Að hans mati sé verið að stilla erlendum ESB-sinnum upp sem fyrirmyndum og bandamönnum þótt þeir njóti ekki endilega stuðnings meirihluta kjósenda í eigin löndum.

„Málstaður sem þarf að styðja sig við slíka táknmyndapólitík stendur veikum fótum,“ skrifar hann og spyr hvers vegna nauðsynlegt sé að leita siðferðilegs og pólitísks stuðnings til erlendra ráðherra ef ESB-aðild sé jafn augljóslega Íslandi í hag og haldið sé fram.

Ákvörðunin eigi að byggjast á hagsmunum Íslands

Í niðurlagi pistilsins leggur Júlíus áherslu á að komandi þjóðaratkvæðagreiðsla eigi ekki að ráðast af heimsóknum erlendra ráðherra eða alþjóðlegum kynningarviðburðum.

Hann segir að ákvörðunin eigi að byggjast á hagsmunum Íslands, stjórnarskrá lýðveldisins og rétti þjóðarinnar til að ráða eigin málum.

Júlíus hvetur að lokum kjósendur til að hafna áframhaldandi ESB-vegferð í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.

„Segjum skýrt NEI þ. 29. ágúst og stöndum vörð um Ísland,“ skrifar hann.