Trump í 60 mínútum: „Þú ættir að skammast þín fyrir að lesa upp að ég sé nauðgari og barnaníðingur“

Í nýjasta þætti 60 Minutes sjónvarpsstöðvarinnar CBS var rætt við Trump Bandaríkjaforseta um skotárásina á hátíðarkvöldverði Hvíta hússins með blaðamönnum. Var rætt ítarlega um atburðinn en þegar fréttakona CBS las upp bréf brjálaða kennarans Cole Allen um að Trump væri rasisti, nauðgari go barnaníðingur, þá fékk Trump nóg og sagði að hún ætti að skammast sín að vera að bera slíkt á borð við sig í viðtali. Hann væri hvorki nauðgari né barnaníðingur en vinstri menn reyna að hrauna hvaða skít sem er yfir forsetann. Trumpheilkenni er vægast sagt alvarlegur sjúkdómur, þegar fólk fer úr sambandi, þegar það heyrir minnst á Trump.

Donald J. Trump forseti gagnrýndi fréttaþáttinn 60 Minutes á CBS harðlega í viðtali. Í viðtalinu hafnaði hann því að láta þáttastjórnendur, sem hann sakaði um hlutdrægni, setja fram ásakanir á hendur sér sem hann taldi ósannar. Þegar lesnar voru upp alvarlegar ásakanir frá gagnrýnanda — þar á meðal að hann væri barnaníðingur, nauðgari og svikari — brást Trump við með því að segja að hann hefði búist við slíku og gagnrýndi fjölmiðlamennina harðlega.

Hann sagði jafnframt að ásakanirnar væru rangar og byggðar á orðum einstaklings sem hann lýsti sem sjúkum, og að fjölmiðlamenn ættu að skammast sín fyrir að endurtaka slíkt. Þetta gerðist daginn eftir tilraun til árásar á hann, og gagnrýndi hann að þátturinn skyldi fjalla um slíkar ásakanir í stað þess að leggja áherslu á aðrar fréttir.

Í umfjölluninni er því haldið fram að fjölmiðlar hafi verið gagnrýndir fyrir framsetningu sína og að þeir hafi haldið áfram að birta umdeildar fullyrðingar. Einnig er vísað til þess að stuðningsmenn Trumps telji að hann sýni styrk í viðbrögðum sínum og að þeir líti á hann sem fulltrúa almennings.

Hér að neðan er fyrst stuttur bútur með ummælum Trumps og síðan sjálft viðtalið í heild sinni: