„Misskilningur“ um fjölda múslíma á Íslandi leiðréttur

Sigfús Aðalsteinsson leiðréttir í færslu á facebook „misskilning eða mýtu“ um fjölda múslíma á Íslandi, þar fullyrt er að þeir séu 1600 manns. Sigfús skrifar:

„ÞAÐ ER RANGT, þeir eru vel yfir 4.000. Ég tók saman fjölda þeirra sem eru hér á Íslandi, flestir hælisleitendur frá nokkrum löndum þar sem Islam ræður ríkjum. Inn í þetta vantar fjöldann allan af löndum þar sem Islam er við lýði en ekki í meirihluta.

Ef þið skoðið löndin sem eru í töflunni og berið saman við þjóðerni þeirra sem eru að rústa Evrópu þarf ekki miklar gáfur til að átta sig á að þetta kraumar undir hér sem annars staðar. Tökum hendur frá andlitinu og gerum eitthvað í þessu.“

Ýmsir tjá sig í athugasemdum og segjast ekki hafa haft hugmynd um þessar staðreyndir.