Lögreglumenn voru beittir þrýstingi með fjölbreytileikanámskeiðum fyrir morðið á Nowak

Innri skýrsla frá lögreglunni í Hampshire vekur nýjar spurningar eftir morðið á Henry Nowak, að því er The Telegraph greinir frá. Í úttektinni kemur fram að lögreglumenn upplifðu þrýsting í skyldubundnum námskeiðum um kynþáttafordóma og fjölbreytileika – hjá sama lögregluembætti og síðar handjárnaði hinn deyjandi 18 ára gamla Nowak á meðan frásögn morðingjans fékk að stýra aðgerðum lögreglu.

Þessar upplýsingar koma fram aðeins nokkrum dögum eftir að birtar voru upptökur úr myndavél lögreglu sem sýna síðustu mínútur Henry Nowak. Á myndskeiðinu sést hvernig hinn hnífstungni nemi segir ítrekað að hann hafi verið stunginn og geti ekki andað, á meðan lögreglan meðhöndlar hann sem grunaðan mann. Ástæðan var sú að morðinginn, síkinn Vickrum Digwa, sakaði hann um rasisma; ásökun sem lögreglan virðist hafa tekið meira mark á en ástand hins særða.

Innri skýrsla afhjúpar óánægju

Umrædd skýrsla fjallar um skyldubundið námskeið Hampshire-lögreglunnar sem kallast Inngilding skiptir máli „Inclusion Matters“. Námskeiðið fjallaði meðal annars um kynþáttafordóma, forréttindi, ómeðvitaða fordóma og mikilvægi þess að vera „bandamaður.“ Úttekt sem framkvæmd var af University of Reading leiddi í ljós að 15,5 prósent þátttakenda upplifðu að þeim væri „stjórnað og þrýst til að vera á ákveðinn hátt“.

Nær einn af hverjum fimm þátttakendum sagði jafnframt: „Mér fannst eins og mér yrði hafnað ef ég segði eitthvað rangt.“

Háskólinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að sumir þátttakendur upplifðu að þeir gætu ekki tjáð skoðanir sínar frjálslega á meðan á námskeiðinu stóð. Skýrslan byggir á svörum frá þúsund starfsmönnum lögreglunnar.

Lögrelgustjóri Hampshire, Alexis Boon, á blaðamannafundi eftir morðið á Nowak.

Fékk nýja þýðingu eftir dauða Nowak

Skýrslan hefði líklega vakið takmarkaða athygli ef ekki hefði verið fyrir þá atburði sem síðar skóku Bretland. Eftir að upptökurnar úr myndavélum lögreglu voru birtar hefur innihald hennar fengið allt annað vægi.

Þegar Henry Nowak var stunginn til bana af Vickrum Digwa sagði Digwa lögreglunni að hann hefði orðið fyrir rasisma. Á sama tíma lá Henry lífshættulega særður á jörðinni og reyndi að fá hjálp.

Á upptökunum úr búkmyndavélunum heyrist Henry ítrekað segja:

„Ég hef verið stunginn.“
„Ég get ekki andað.“

Þrátt fyrir það var hann handjárnaður á meðan lögreglan beindi athygli sinni að frásögn Digwa. Digwa var síðar dæmdur fyrir morð eftir að framburði hans um atburðarásina var hafnaði af dómstól. Sú staðreynd að lögreglan handjárnaði hinn deyjandi Nowak vakti gríðarlega reiði almennings.

Forgangsröðuðu ásökunum um rasisma

Lögreglustjórinn Alexis Boon hafnar því að námskeiðin eða verklagsreglur hafi haft nokkur áhrif á atburðarásina. Hann neitar einnig að um nokkurs konar tveggja þrepa löggæslu („two-tier policing“) hafi verið að ræða. Gagnrýni á þá menningu sem hefur þróast innan hluta bresku lögreglunnar eftir George Floyd-málið árið 2020 fer hins vegar vaxandi. Margir álitsgjafar telja að þessi þróun hafi haft raunverulegar afleiðingar á dagleg störf lögreglu.

Íhaldsþingmaðurinn Chris Philp telur að þessi menning hafi orðið til þess að lögreglumenn „settu ásakanir um kynþáttafordóma ofar því að bjarga lífi ungs manns.“

Fyrir þá sem krefjast réttlætis fyrir Henry Nowak er skýrslan enn einn púslbitinn í skýringunni á því hvers vegna athygli lögreglunnar beindist að ásökun um kynþáttafordóma í stað þess að beinast að lífshættulega særðum 18 ára pilti sem lá fyrir framan þá.

Búist er við að þessar upplýsingar muni hleypa nýjum krafti í kröfur um ítarlega rannsókn á bæði framgöngu lögreglunnar og þeim reglum sem stýra fræðslu breskra lögreglumanna um rasisma og mismunun.