Trump: Loftslagspólitíkin „stærsta svindl sögunnar“

Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í ræðu sinni á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni WEF að hin svo kallaða græna stefna stjórnmálamanna gæti verið stærsta svindl sögunnar.

Í ræðu sinni á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos talaði Donald Trump meðal annars um „Nýju Grænu svikamylluna.“ Hann sagði:

„Þökk sé stórsigri mínum hefur Bandaríkjunum tekist að forðast orkuslysið sem skall á öllum Evrópulöndunum sem féllu fyrir Nýju Grænu svikamyllunni. Hún er kannski stærsta svindl sögunnar. Nýja Græna svikamyllan. Vindmyllur alls staðar. Eyðileggðu landið þitt. Eyðileggðu landið þitt. Í hvert skipti sem þær snúast taparðu 1.000 dollurum.

Hugmyndin er að þéna peninga með orku, ekki tapa peningum.

Hér í Evrópu sjáum við örlögin sem öfgafullir vinstrimenn reyndu að þröngva upp á Bandaríkin. Þeir reyndu það ítarlega. Í dag framleiðir Þýskaland 22% minni orku samanborið við 2017.

Fara efst á síðu