Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að hann hyggist stefna BBC eftir að í ljós kom að hlutar ræðu hans voru falsaðar. Á blaðamannafundi um borð í Air Force One sagði Trump að krafan næmi á bilinu einum til fimm milljörðum dollara, sem jafngildir um það bil 147 – 637 milljörðum íslenskra króna.
Hneykslið í kringum BBC náði hámarki í síðustu viku þegar í ljós kom að fyrirtækið hafði klippt brot úr ræðu Donalds Trumps frá 6. janúar 2021. Með því að klippa saman hluta ræðunnar á villandi hátt gaf myndbandið þá mynd að Trump væri að hvetja stuðningsmenn sína til að ráðast á bandaríska þingið. Í staðinn hvatti hann mannfjöldann til að hylla hugrakka þingmenn beggja deilda þingsins við þinghúsið.
BBC hefur rekið yfirmenn stofnunarinnar og beðist afsökunar á útsendingunni, en neitar samt að bæta Trump tjónið fyrir falsfrétt fyrirtækisins. Núna hefur forsetinn ákveðið að draga BBC fyrir dómstól og krefjast margra milljarða dollara skaðabóta. Trump tjáði sig um málið á föstudagskvöld:
„Ég held að ég verði að gera það. Þeir hafa viðurkennt að þeir hafi svikið. Þeir breyttu orðunum sem komu út úr munni mínum. Það sýnir að BBC flytur falsfréttir. Við vissum um það löngu áður.“
Trump hefur áður sagt að hann hyggist stefna breska ríkisfjölmiðlinum, en upphæðirnar sem hann nefndi þá voru verulega lægri en þær tölur sem hann vísar nú til á milli eins og fimm milljarða dollara. Bandaríkjaforseti segir að lagalegt ferli sé á næsta leiti og gæti hafist þegar í næstu viku.
BBC hefur ekki tjáð sig enn um nýjustu yfirlýsingar Trumps.
Hér má heyra yfirlýsingu Trumps um borð í Air Force One á föstudag:
