Strætisvagn keyrði á strætóskýli í Stokkhólmi – þrír látnir og tveir í lífshættu

Þrír eru látnir og þrír eru á sjúkrahúsi, þar af tveir í lífshættu, eftir að farþegalaus tveggja hæða strætisvagn keyrði á biðskýli nálægt Konunglega tækniháskólanum í miðborg Stokkhólms um hálf fjögurleytið föstudag. Biðskýlið færðist 30 metra úr stað við ákeyrsluna.

Lögreglan handtók strætisvagnabílstjórann fyrir að hafa með gáleysi orðið öðrum að bana. Hann er í varðhaldi eftir ákvörðun saksóknara. Expressen kom fyrst með að strætisvagnabílstjórinn hefði orðið veikur en ættingjar hans könnuðust ekki við það. Lögreglan segir að ekkert bendi til þess eins og er að ákeyrslan hafi verið vísvitandi gerð.

Verið er að auðkenna þá látnu og búið er að aflétta lokun svæðisins.

Sjá nánar hér, hér og hér.

Fara efst á síðu