ESB er að breytast í hernaðarsamband

Starfsmenn SAAB í Svíþjóð skotmark í stríði

Rússnesk árás á vopnaverksmiðjur í Svíþjóð er ekki útilokuð. Það segir Lars Bern á Swebbtv. Þeir sem starfa hjá Saab eru í hættu.

Í samtalsþætti á Swebbtv um heimsmálin ræða þeir Mikael Willgert og Lars Bern meðal annars um stríðið í Úkraínu.

Trump gagnrýnir Nató og Bandaríkin hafa velt meira af Úkraínustríðinu yfir á Evrópu. Lars Bern segir:

„ESB er að breytast í hernaðarsamtök í stað viðskiptasambands.”

Svíþjóð hefur tekið áberandi hlutverk í umboðsstríðinu gegn Rússlandi. Hvað gerist ef Rússland byrjar að ráðast á þá sem eru utan Úkraínu? Lars Bern svarar:

„Það sem ég held að þeir muni gera er að skjóta niður vopnaverksmiðjur í Svíþjóð. Þannig að þeir sem starfa hjá Saab í Linköping eru í hættu. Það er ekki hægt að útiloka árás með Oreshnik eldflaugum á Saab verksmiðjuna í Linköping.”

„Auðvitað vonum við að friður sé á leiðinni. En allir hérna megin eru svo herskáir. Evrópsku stjórnmálamennirnir okkar hafa alveg glatað rónni. Þeir verða að skilja það að Rússar eru vopnaðir upp yfir herðar.”