Bílaárás í Þýskalandi – tveir myrtir – 25 særðir

Síðdegis á mánudag ók maður í gegnum hóp gangandi vegfarenda í miðbæ Leipzig í Þýskalandi. Samkvæmt fjölmiðlum dóu að minnsta kosti tveir og yfir 25 hafa særst.

Þýskaland hefur enn á ný orðið fyrir miklum usla vegna atviks þar sem ökutæki var ekið inn í mannfjölda, að þessu sinni í Leipzig. Slík avik hafa sífellt orðið algengari á undanförnum árum og bendir til hörmulegrar þróunar á almannafæri í miðbæum borga.

Ein af umdeildustu árásunum átti sér stað á jólamarkaðinum í Magdeburg þar sem sex lvoru drepnir og margir særðust.

Þýskir fjölmiðlar greina frá því að ökumaður hafi ekið bíl sínum inn á göngugötu þar sem margir voru. Samkvæmt frásögnum vitna ók bíllinn á miklum hraða beint inn í mannfjöldann og keyrði um koll fjölda manns.

Um 80 sjúkrabílar og björgunarsveitarmenn fóru á vettvang til að aðstoða fórnarlömbin. Þegar þetta er skrifað eru tveir sagðir látnir og um 25 særðir.

Lögreglan handtók ökumanninn í tengslum við atvikið. Tildrög atviksins eru enn óljós og eru til rannsóknar hjá yfirvöldum. Samkvæmt fjölmiðlum er ökumanninum sagður vera „ruglaður.“

Horfðu á myndskeið frá handtökunni: