Gyðingahatrið farið úr böndunum í Bretlandi

Glæpafréttaritari The Telegaraph í Bretlandi skrifar að gyðingahatrið sé komið úr böndunum í Bretlandi að sögn Ísraels eftir að tveir gyðingar voru stungnir í hryðjuverkaárás í Golders Green. Utanríkisráðuneyti Ísraels sagði að orð Sir Keir Starmers „gætu engan veginn komið í stað þess að takast á við rætur gyðingahaturs“ eftir að mennirnir, 76 og 34 ára, voru stungnir þegar þeir gengu nærri samkunduhúsi í gærmorgun.

Með greininni fylgdi kort sem sýnir að á síðasta mánuði voru framin fimm ódæðisárásir á gyðinga í norðurhluta London. Kveikt var í fjórum sjúkrabílum sem tilheyra Hatzolah, gyðinglegum góðgerðasamtökum. Fyrir tveimur vikum köstuðu tveir einstaklingar múrsteini og bensínsprengjum að samkunduhúsi; nokkrum dögum síðar var kveikt í fyrrum skrifstofum gyðinglegra fræðslusamtaka, þar sem Davíðsstjarnan sást enn í glugganum; kvöldið áður en hnífaárásin í gær átti sér stað var kveikt í minningarvegg fórnarlamba hinna grimmilegu fjöldamorða 7. október. Árásir voru gerðar á Heaton Park samkunduhúsið sem kostuðu tvo gyðinga lífið á Yom Kippur, helgasta degi gyðingadagatalsins. Melvin Cravitz, 66 ára, og Adrian Daulby, 53 ára voru drepnir á tröppum samkunduhússins.

Orð duga ekki ein og sér

Eftir þessa bylgju hnífa- og bensínsprengjuárása á samkomustaði gyðinga í norðurhluta London undanfarinn mánuð sagði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, að Bretland hefði misst stjórn á gyðingahatrinu og krafðist þess að Keir Starmer gerði meira til að „vernda gyðinga Englands“. Hann bætti við:

„Veikleiki kyndir undir hverri gyðingahatursárásinni á fætur annarri í London. Orð ein og sér duga ekki til að takast á við þessa vá.“

Gideon Falter, framkvæmdastjóri góðgerðasamtakanna Campaign Against Anti-Semitism, sagði:

„Gyðingahatur í Bretlandi er komið úr böndunum. Ungt fólk verður róttækari, Íran stendur að baki hryðjuverkum og stjórnmálamenn okkar og lögregla friða öfgamenn. Það er neyðarástand í landinu og eftir svo margar árásir höfum við enn ekki séð nein merki þess að forsætisráðherrann hafi áætlun.“

Starmer, sem hefur ekki heimsótt vettvang nýjustu árásarinnar og sagðist ætla að gera það „eins fljótt og auðið er“ sagði: „Við þurfum að komast að rótum öfgahyggju og gyðingahaturs.“

Utanríkisráðuneyti Ísraels sendi frá sér yfirlýsingu um málið:

„Yfirlýsingar Keir Starmer koma ekki í staðinn fyrir aðgerðir til að takast á við rætur gyðingahaturs sem kraumar víða um Bretland. Breskir gyðingar ættu ekki að þurfa öryggisvaktir og sjálfboðaliða í neyðarþjónustu til að geta lifað opið sem gyðingar.“