Aðeins Morgunblaðið greindi frá X-færslum Ólafs Ragnars Grímssonar

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er hvergi af baki dottinn, þegar kemur að því að verja fullveldi Lýðveldisins Íslands.

Enginn íslenskur fjölmiðill nema Morgunblaðið greindi frá athugasemdum Ólafs Ragnars Grímssonar við grein Financial Times um mögulegar undanþágur fyrir Ísland frá reglugerðum ESB um sjávarútvegsmál.

Gústaf Skúlason gerði leit á netinu um hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um þetta mál. Aðeins Morgunblaðið greindi frá X-færslum Ólafs Ragnars, en það breytir ekki þeirri skoðun minni að það gerði Mbl. á ófaglegan hátt: “Eini fróðleikurinn sem lesendur geta dregið af þessum skrifum (Mbl) er að Ólafur Ragnar (hver) skrifaði X færslur um ESB (hvað) í gær (hvenær), að „frétta”manni eða/og ritstjórn Mbl. finnist eitthvað hæðnislegt við þær og að hvorki sé ástæða til að taka fyrrverandi forseta Íslands né ummæli hans alvarlega með því að fjalla um þau efnislega eða á málefnalegan hátt.”

Alvöru frétt undir þessari fyrirsögn: „Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB” hefði, auk þess að greina frá grunnmálinu (greininni í Financial Times og ummælum sjávarútvegsstjóra um mögulegar undanþágur fyrir Ísland) og X færslum Ólafs Ragnars Grímssonar (hvað, hver, hvar) við grein FT, leitað frekari upplýsinga hjá fyrrverandi forseta Íslands sem skýrðu ummæli hans (hvers vegna), sem og hjá e.t.v. utanríkisráðherra eða ESB sérfræðingi fróðum um sjávarútvegsmál. Sem sagt, „leita viðbragða frá öllum helstu aðilum” og gera lesendum þannig „kleift að mynda sér eigin skoðun á grundvelli vandaðrar fréttamennsku,” sem ekki er lengur til á Íslandi.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson vakti á FB athygli á því að Egill Helgason, sem eitt sinn var alvöru fréttamaður, en hefur eins og svo margir aðrir orðið Trump-fjöldageðrofinu að bráð, gerði svofellda athugasemd við að Ólafur Ragnar Grímsson skuli hafa skrifað um ESB: „Maður spyr sig þá hvort ekki eigi að láta yngra fólk um þetta?“ Vill hann þá ekki líka svipta okkur, sem komin erum yfir sjötugt, kosningarrétti og „láta yngra fólk um þetta“? Ég hélt við byggjum í landi, þar sem allir hefðu rétt til stjórnmálaþátttöku óháð aldri,” segir Hannes.

Egill og félagar hans vilja vitanlega láta íslenskar vinstrisinnaðar konur, 18-40 ára algjörlega um stjórn landsins. Sem þær nú sjá um, enda er allt á sömu Satans söngbókina lært í landinu.

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur

Hér að neðan má sjá skrif fyrrverandi forseta Íslands á X: