Í nýju viðtali við Karl Gunnarsson flugstjóra í Kanada kennir ýmissa grasa. Farið er yfir ástandið í heimsmálunum, stríðið í Íran, svikula stjórnmálamenn í Kanada og á Íslandi og hversu rétt Trump sé að gera með því að yfirgefa sokknar spilltar stofnanir eins og WHO og SÞ. Íslendingar eiga að fylgja Bandaríkjunum að málum og segja Kristrúnu Frostadóttur og stöllum hennar í ríkisstjórninni að hypja sig burtu. Þær mega taka pokann og fara, þjóðin þarf ekki slíkar afætur við barm sér sem ala á sundrungu og fjárhagslegri kúgun á landsmenn.
Karl Gunnarsson var hress að vanda, þegar Þjóðólfur hringdi í hann og spurði um álit hans á ýmsum málum. Talið barst að lágflugi þotu Icelandair yfir Vestmannaeyjum og sagði Karl Gunnarsson að þetta væri þekkt innan fyrirtækisins, til að mynda hefði Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri hjá Icelandair sjálf flogið slíkt lágflug. Hins vegar hefði flugmaðurinn sem fór yfir Vestmannaeyjar flogið allt of lágt og langt undir öryggismörkum, þannig að allt hafi nötrað og skolfið á heimilum í Vestmannaeyjum þegar hann flaug yfir fyrir utan að hafa brotið flugöryggisreglur.
Talið barst að Íran og segir Karl að vígamenn úr löndum kringum Íran safni liði í Íran til að aðstoða gegn husanlegri árás Bandaríkjamanna. Ef stríðið fer úr böndunum munu afleiðingarnar hafa áhrif á alla heimsbyggðina, því mikill hluti olíu frá löndum eins og Qatar, Sameinuðu arabafurstadæmunum m.fl. siglir um hið viðkvæma Hormússund sem Íran reynir að halda á sínu valdi.
Karl ræddi alþjóðastofnanir eins og Nató og SÞ og benti á að Trump og Bandaríkin ættu að segja sig alfarið frá þessum stofnunum. Hann varar við því að Íslendingar hengi sig aftan í ESB eða slíkar stofnani og eiga alfarið að standa með vörnum Bandaríkjanna á Íslandi. Bandaríkjamenn hafa aldrei skipt sér um of af innanríkismálum á Íslandi, heldur vilja hafa aðstöðu þar og bjóða varnir til landsins í staðinn. Þetta samstarf eiga Íslendingar að vernda og berjast fyrir gegn því volæðis stundarslaufunarbrjálæði sem núna tröllríður hinum vestræna heimi.
Þátturinn endar á laginu „Taktu pokann þinn og stingdu honum í …..” sem passar ágætlega við núverandi stjórnvöld sem eru að kvelja landsmenn og ana áfram í hverri vitleysuninni á eftir annarri.
Svo kæra Kristrún Frostadóttir:
