Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boða til opins umræðufundar um íslam og Ísland á veitingastaðnum og kaffihúsinu Catalínu, Hamraborg 11, Kópavogi á mánudagskvöld 20. apríl klukkan 20:00.
Í tilkynningu félagsins segir:
„Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðar til opins umræðufundar.
Staður: Catalína, veitingastaður og kaffihús,
Tímasetning: Mánudaginn 20. apríl kl. 20:00.
Fundarefni: Á Íslam heima á Íslandi.
Framsögumenn: sr. Arndís Hauksdóttir og Valdimar Jóhannesson, fv. blaðamaður og baráttumaður.
Fullt málfrelsi og allir velkomnir.
Félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að taka með sér gesti og kynna fundinn sem víðast.”
Þjóðólfur átti afar fróðlegt viðtal um íslam við Valdimar Jóhannesson, sem er einna manna fróðastur um þau málefni á Íslandi sjá hér að neðan:
