Fullyrðing: Epstein var hluti af „yfirþjóðlegum hópi“ sem stjórnar heiminum

Það er til „yfirþjóðlegur hópur“ eða „þverhugmyndafræðilegt fyrirtæki“ sem í raun stýrir heiminum og líklegt er að Jeffrey Epstein hafi verið hluti af honum. Rannsóknarblaðakonan Whitney Webb heldur því fram í viðtali, sjá youtube að neðan.

Í viðtali við Jimmy Dore útskýrir Webb hvernig hún lítur á hlutverk Epsteins.

„Það er til yfirþjóðlegur hópur sem Epstein var hluti af, en hann var ekki sá sem stýrði honum, segir Webb. Hann var í mesta lagi millistjórnandi. Og þessi hópur hefur áhrif á mörg stjórnvöld. Hann er í raun ekki undir eftirliti neins ríkis og er ekki raunverulega tryggur neinu þeirra. Þetta er í raun ein af þeim leiðum sem heiminum er í raun og veru stjórnað, ólíkt opinberum ríkisstjórnum sem við þekkjum, sem hafa að mestu verið gerðar að vettvangi sem gerir kleift að framfylgja stefnu sem mótuð er af þessum aðilum, og berst niður í gegnum hugveitur og góðgerðasamtök.“

Whitney heldur því einnig fram að Epstein hafi staðið að mörgum slíkum verkefnum og jafnframt þvegið peninga.

Hann hafi verið andlit fyrir „ólígarka“ sem aldrei þurfa að svara til saka.

Samkvæmt Webb bar lykilpersóna úr þessu neti vitni fyrir bandaríska þinginu á áttunda áratugnum. Þar hafi hann upplýst um starfsemina, en fáir veittu því athygli á þeim tíma. Þar hafi verið sagt að búið væri að skapa „þverhugmyndafræðilegt fyrirtæki“ sem varð hið raunverulega vald í heiminum og gerði þjóðríkin að mestu óþörf. Það hafi byggt upp kerfi „sem í reynd stjórnaði heiminum.“ Boðskapur Webb var:

„Það skiptir engu máli hvað þjóðríki gera. Þau lúta okkur. Þannig myndi ég halda því fram að þetta sé það sem Epstein vann í raun fyrir. Og leyniþjónustur, eins og Central Intelligence Agency, þjónar sömu aðilum. CIA er ekki efst í valdapýramídanum.“