AfD tekur stórt stökk – nú langstærsti flokkurinn

Valkostur fyrir Þýskaland, Alternative für Deutschland (AfD) eykur forskot sitt í skoðanakönnunum í Þýskalandi. Ný könnun sýnir að flokkurinn er nú greinilega á undan Kristdemókrötum CDU og CSU. En þrátt fyrir að AfD sé nú klárlega stærsti flokkur Þýskalands neita hinir flokkarnir enn að hafa nokkuð samráð við áskorandann.

Innflytjendagagnrýni AfD heldur áfram að styrkja stöðu sína sem stærsti krafturinn í þýskum stjórnmálum. Í nýrri könnun skoðanakönnunarfyrirtækisins YouGov nær flokkurinn 27 prósentum.

Það þýðir að AfD er nú fjórum prósentustigum á undan kristilega demókrataflokknum CDU og CSU sem er stærsta forskot sem mælst hefur hingað til.

Á sama tíma gildir enn svokallaður „eldveggur. Það er samkomulag sem hinir flokkarnir hafa gert sín á milli um að eiga ekki í samtali við AfD né veita flokknum nokkurt áhrifavald. Umræður eru meðal hinna flokkanna um að banna Valkost fyrir Þýskaland sem núna er stærstur.

Í könnuninni, sem nær til 1.763 einstaklinga, fellur CDU/CSU niður í lægsta fylgi á fjórum árum, 23 prósent.

Á sama tíma falla Sósíaldemókratar niður í 13 prósent. Græningjar hækka í 14 prósent og Die Linke í 10 prósent.

Bæði frjálslyndi FDP og vinstripopúlíski BSW hækka lítillega, en eru áfram í 4 prósentum – undir þröskuldi til þingsæta.

Samkvæmt öðrum nýlegum könnunum er AfD nú annað hvort í efsta sæti eða á pari við CDU og CSU.

Alice Weidel, formaður Valkosts fyrir Þýskaland segir þróunina sýna breytingu í almenningsálitinu:

„Fjórum prósentustigum á undan sambandinu, 4 af hverjum 5 borgurum óánægðir með Merz: Við höfum ekki lengur tíma fyrir ólýðræðislega eldveggi. Pólitíska stefnubreytingin verður að eiga sér stað núna.“