Greiðslur til ESB verða margfalt hærri en við fáum til baka við inngöngu í ESB

Ef við værum komin í Evrópusambandið værum við komin í félagsþjónustu fyrir fátækar þjóðir ESB. Framlag “ríkra” þjóða er frá 1-1,5% af vergri landsframleiðslu, VLF, og líklega yrði hærri talan gildandi fyrir Ísland.

Áætluð heildarframlög Íslands til ESB

Greiðslur til ESB miðast við landsframleiðslu, VLF. Áætluð landsframleiðsla Íslands árið 2025 er 4.893 milljarðar króna. Ef við miðum við að Ísland greiði um 1% af VLF (sem er algeng viðmiðun), væri heildargreiðslan um 48,9 milljarðar króna á ári. Miðað við 1,5% verður greiðslan 73,4 milljarðar kr og miðað við 2% verður greiðslan 97,9 milljarðar króna árlega.

Miðað við tölu 2025 (VLF ≈ 4.893 ma.kr.) og 1,5% framlag, þá verður kostnaðurinn 183.500 krónur á mann á ári miðað við að landsmenn séu 400 þúsund sem samsvarar mánaðarlegum aukaskatti á hvern landsmann upp á 15.300 kr. Miðað við að 2,5 manns séu á meðalheimilinu og að fjöldi heimila sé 177.800 verður árskostnaðurinn vegna ESB-aðildar kr. 412.800 á ári eða 34.400 kr. aukaskattur á hvert heimili á mánuði.

Til samanburðar við ríkisútgjöld

73,4 milljarðar króna aukaskattur á landsmenn samsvarar:

  • 73% af árlegum rekstrarkostnaði Landsspítalans
  • tveggja ára rekstri íslensku utanríkisþjónustunnar
  • 1,25 nýjum Fjarðarheiðargöngum á hverju ári
  • nýrri Sundabraut með brú og samt yrði 6% afgangur fyrir gullskærum handa ráðherra til að klippa borðann við opnunina
Fyrir eitt brúttó ársgjald í ESB-klúbbinn væri hægt að opna Sundabraut með brú og samt eiga 6% í afgang. Reykvíkingar hagnast því allir á því að segja NEI við ESB í atkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst. Hildur Björnsdóttir nýkjörinn borgarstjóri gæti skálað í kampavíni ef ríkið léti borgina fá eitt brúttó ESB-ársgjald til að klára Sundabrautina. Hún gæti klippt borðann með gullskærum og lækkað fasteignagjöld fyrir afganginn.

Á dag, klukkustund, mínútu, sekúndu…….

  • 73,4 ma.kr. á ári = 201 milljón króna á dag
  • eða um 8,4 milljónir króna á klukkustund allan sólarhringinn allt árið
  • eða 140 þúsund krónur á mínútu
  • 2.330 krónur á sekúndu.

Þetta þýðir að á meðan fréttamaður RÚV (á launum frá ríkinu sem leggst við upphæðina) les upp tveggja mínútna frétt frá ESB, þá hverfa 280 þúsund krónur úr vasa landsmanna.

Þetta er varlega reiknað brúttó árlegur kostnaður fyrir að vera með í klúbbnum.

Síðan svo sanngirnin fái að njóta sín, þá verður um endurgreiðslur að ræða eins og til dæmis til landbúnaðarins o.s.frv. En búast má við að allt verði étið upp og meira þar til af loftslagssköttum, glötuðum þorskgildum, enn meira reglugerðarfargani sem setja myndi athafnamenn og fyrirtæki á Íslandi í öndunarvél plús aukinn kostnaður við enn fleiri hælisleitendur, hrunið húsnæðiskerfi og menntakerfi og ……….

Framhald kemur síðar.