Formaður ungra Svíþjóðardemókrata, Denice Westerberg, á mynd, vill láta loka moskum, stöðva byggingar moska sem eru fjármagnaðar erlendis frá og banna bænaköll. Til hægri fjöldabæn í Malmö.
Umræðan um íslam, aðlögun innflytjenda og sænska þjóðarvitundin hefur enn á ný komist í hámæli eftir umdeild ummæli formanns ungliðahreyfingar Svíþjóðardemókrata og jafnframt stjórnmálamanns hjá Svíþjóðardemókrötum (SD), Denice Westerberg. Hún telur að ekki sé hægt að vera sænskur samtímis og maður er trúaður múslimi.
Í viðtali í stjórnmálaþætti Aftonbladet, My och Makten, hélt Westerberg því fram að íslamvæðing eigi sér stað í Svíþjóð. Sem dæmi nefnir hún fjölgun moska, trúarleg birtingarform í opinberu rými og það sem hún lýsir sem aðlögunum innan skólakerfisins vegna trúarlegra sjónarmiða. Westerberg segir í þættinum:
„Ef maður ferðast um Svíþjóð, eins og ég geri mikið, þá eru moskur í annarri hverri sænskri borg. Það eru bænaturnar með bænaköllum, skólar sem bjóða ekki upp á svínakjöt og skólar sem hafa bannað sænska fánann við útskriftarathafnir nemenda.”
Ungsvenskarna þrýsta á móðurflokk sinn um ýmsar aðgerðir sem beinast að starfsemi moska. Meðal tillagnanna eru heimildir til að loka moskum þar sem öfgahyggja á sér stað, stöðvun á byggingu moska sem eru fjármagnaðar erlendis frá og bann við bænaköllum.

Þegar Denice Westerberg er spurð hversu umfangsmikið vandamálið með bænaköll sé, með vísan til þess að aðeins þrjár moskur í Svíþjóð hafi leyfi fyrir slíkum köllum, svarar hún að þrjár moskur með bænaköllum séu þremur of margar.
– Við eigum ekki að hafa bænaköll í Svíþjóð.
Jafnframt leggur Westerberg áherslu á að hún sé ekki andvíg því að fólk iðki trú sína í einkalífi sínu.
– Maður getur haft einkatrú. Maður getur verið múslimi í Svíþjóð svo lengi sem maður þröngvar ekki gildum sínum upp á aðra, segir hún.
Sænskur og múslími
Eitt þeirra atriða í viðtalinu sem vakti mesta athygli kom fram í hraðspurningum. Þegar hún var spurð hvort mögulegt væri að vera bæði sænskur og trúaður múslimi svaraði Westerberg stuttlega: „Nei.“
Westerberg útskýrði afstöðu sína með því að hún telji að ákveðnir þættir í gildum íslams stangist á við það sem hún lýsir sem sænskum gildum. Að mati SD-stjórnmálamannsins ætti sá sem vill lifa að fullu samkvæmt íslam að velta því fyrir sér hvort Svíþjóð sé rétta landið til að búa í.
