Þú skalt ekki aðra guði hafa – Ísland er heimili Krists – ekki Íslam

Geir Waage formaður málfundafélagsins Frelsi og fullveldi.

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi hélt nýlega fund um efnið: Á Íslam heima á Íslandi? Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður stýrði fundinum.

Frummælendur voru Sr. Arndís Hauksdóttir, pastor emeritus og Valdimar Jóhannesson, fv. blaðamaður sem er lesendum Þjóðólfs kunnugur eftir viðtal við Þjóðólf með djúpgreiningu á fyrirbærinu Íslam.

Arndís Hauksdóttir flutti harðorða ræðu um innflytjenda- og hælisleitendamál þar sem hún varaði við áhrifum íslams í Evrópu og á Íslandi. Hún vísaði meðal annars til grooming-mála í Bretlandi, sharía-laga í múslímskum ríkjum og þróunar mála í Svíþjóð og Noregi. Ræðan vakti viðbrögð meðal fundargesta vegna skírskotana með beinum dæmum úr hörðum raunveruleika sem margir velja að snúa blinda auganu að. Sérstaklega hefur ástandið í Bretlandi vakið óhug vegna nauðgana og morða og hræðslu til dæmis lögreglunnar að vera kallaðir rasistar sem hefur leitt til undanlátssemi við kenningar íslam og misbeitingu valds gegn hvítum.

Valdimar Jóhannesson sýndi fram á að íslam væri ekki aðeins trúarbrögð heldur heildstætt pólitískt kerfi sem stangaðist á við vestræn lýðræðissamfélög og stefni í reynd að heimsyfirráðum. Hann vísaði til sögu íslams, þjóðarmorðsins á Armenum, stöðu kristinna minnihlutahópa í Miðausturlöndum og þróunar innflytjendamála í Evrópu. Notaði Valdimar glærur til aðstoðar og hryllilega glæpi íslam gegnum söguna. Kristnir menn eru hundeltir og drepnir af heilagastríðsmönnum íslam. Íslam gefur kristnum bara þrjá valkosti: Yfirgefa kristna trú og taka upp íslam í staðinn. Lifa sem lægri stétt og greiða hærri skatta en íslam trúandi. Týna höfðinu.

Margir tóku til máls á fundinum, meðal annarra Íris Erlingsdóttir og Eldur Smári Kristinsson. Í lokaorðum fundarins þakkaði formaður félagsins, Geir Waage pastor emeritus, fundargestum og framsögumönnum fyrir góð innlegg og fyrir að vekja umræðu um íslam. Hann tók undir áhyggjur af áhrifum fjölmenningar og trúarlegrar fjölbreytni á samfélagið. Jafnframt gagnrýndi hann lög um kynrænt sjálfræði frá 2019 og hormónameðferð og aðgerðir vegna svo kallaðra kynleiðréttinga barna.