Viktor Orbán: Niðurstaðan er sársaukafull en skýr

epa12743755 Leader of the opposition Tisza party Peter Magyar speaks during the party's State of the Nation address event in Budapest, Hungary, 15 February 2026. Hungary's parliamentary elections will take place on 12th April. EPA/Szilard Koszticsak HUNGARY OUT

Peter Mayar leiðtogi Tisza flokknum er sigurvegari kosninganna í Ungverjalandi í dag.

Rétt í þessu lýsti Viktor Orbán sig sigraðan í kosningunum í dag. Hann sagði:

„Ég óskaði Péter Magyar til hamingju með sigurinn.“

„Niðurstaðan er sársaukafull en skýr.“

„Við munum halda áfram að þjóna ungversku þjóðinni og föðurlandi okkar, einnig úr stjórnarandstöðu.“  

Metkjörsókn var í kosningum dagsins í Ungverjalandi í dag, heildarkjörsókn var um 80% sem er hæsta kjörsókn í sögu Ungverjalands.

Samkvæmt bráðabirgðatölum hefur TISZA flokkurinn fengið vel yfir 100 þingmenn kjörna sem þarf til að fá meirihluta í þinginu. Mismunandi tölur hafa komið fram en Þjóðólfur mun birta réttar tölur þegar þær liggja fyrir.

Ursula von der Leyen var fyrst til að óska Magyar til hamingju og síðan hafa ESB leiðtogar hver á fætur öðrum sent hamingjuóskir til Péter Magyar.