Það er nokkuð merkilegt þegar tekst að fá Demókrata og fjölmiðla til að skyndilega hafa áhuga á guðlasti. Það mætti halda að páskadagur hefði leitt til einhverrar óvæntrar endurvakningar hjá þeim, þegar umræðan um mynd af Donald Trump fór af stað.
En að sjálfsögðu var þetta enginn áhugi á guðlasti heldur er reynt að koma höggi á Donald Trump og sagt að hann líti á sjálfan sig sem Jesú Krist. Trumpheilkennissjúklingarnir fengu allt í einu tækifæri til að þykjast hafa áhuga á trúmálu, samtímis sem þeir gátu hunsað ýmis önnur mál sem þeir vildu ekki fjalla um.
Spurningin er: Hvar voru fjölmiðlarnir þegar listamenn voru að sýna Barack Obama sem Jesús? Hvar voru Demókratarnir?
Svo ef þú misstir af því um helgina, þar sem greinilega ekkert annað var að gerast, þá notuðu fjölmiðlar og vinstrið tímann til að reiðast yfir þessari mynd:
Trump sagðist hafa birt myndina vegna þess að hún sýndi hann í hlutverki læknis að lækna bandarísku þjóðina en ekki í hlutverki Krists. Kom í ljós að myndin er gerð eftir listamanninn Nick Adams með þeim skilaboðum að Trump lækni bandarísku þjóðina. Vegna uppistandsins fjarlægði Trump myndina en fjölmiðlarnir halda engu að síður áfram. The New York Times skrifar:
„Að fjarlægja færsluna var sjaldgæf afturför hjá Trump, sem hafði birt myndina, sem virðist hafa verið búin til með gervigreind, stuttu eftir að hann notaði sama miðil til að ráðast á bandaríska páfann Leo XIV, sem hefur gagnrýnt stríð Bandaríkjanna gegn Íran. Birting myndarinnar vakti bakslag frá trúarleiðtogum og kristnum stuðningsmönnum sem voru særðir og hneykslaðir yfir því að Trump virtist sýna sjálfan sig sem Krist.
„Síðar um daginn, í viðtali við CBS News, endurtók Trump skýringu sína og sagði að hann teldi myndina, sem hann sagðist halda að hefði verið gerð af ‘myndarlegum og hæfileikaríkum listamanni,’ hafa sýnt hann sem lækni,“ bætti blaðið við.
Já, allt sem þarf til að aðalblað vinstrisins fari að verða upptekið af guðlasti og sýni kaþólskri trú virðingu er að um sé að ræða Donald Trump.
Spurningin er: Hvar voru fjölmiðlarnir þegar Barack Obama birtist á mynd sem krossfestur frelasrinn með þyrnikórónu og allt?
