Hurðum Élysée-hallarinnar lokað á frönsku lögregluna, þegar hún ætlaði að gera húsleit vegna rannsókn á efnahagsspillingu

Panthéon-spillingarhneyksli í uppsiglingu

Nýtt spillingarmál hefur komið upp í Frakklandi, þegar fjármála- og spillingarlögreglan gerði húsleit hjá aðilum tengdum Élysée-höllinni sem hluta af rannsókn sem hófst í október 2025.

Rannsóknin beinist að ásökunum um frændhygli, hagsmunaárekstra, spillingu og áhrifasölu við úthlutun opinberra samninga um skipulagningu virtra Panthéon-athafna af hálfu Miðstöðvar þjóðminja, Centre des Monuments Nationaux.

Aðgerðir frönsku lögreglunnar beinast sérstaklega að fyrirtækinu Shortcut Events, sem hafði einokun á skipulagningu allra slíkra athafna að verðmæti um tvær milljónir evra á tímabilinu 2002 – 2024.

Rannsakendur vilja komast að því hvort samningarnir sem veittir voru sama fyrirtæki hafi falið í sér óeðlilegan stuðning frá Élysée, menningarmálaráðuneytinu eða tengdum aðilum, með því að sniðganga hefðbundnar útboðsreglum.

En þegar franska lögreglan kom að forsetahöllinni, þá var dyrum lokað og hún komst ekki inn til að vinna störf sín.

Politico greindi frá:

„Franska forsetaembættið neitaði að hleypa rannsakendum inn í Élysée-höllina á þriðjudag sem hluta af rannsókn á samningum tengdum minningarathöfnum og vísaði til friðhelgi sem franski forsetinn Emmanuel Macron nýtur.

Rannsakendunum sem mættu í Élysée-höllina var ekki veittur aðgangur, samkvæmt embættismanni hjá franska forsetaembættinu sem heldur nafni sínu leyndu.

‘Rannsakendum var sagt að skjöl sem varða starfsfólk Élysée-hallarinnar, sem tengjast ekki opinberum störfum forsetans og því er hægt að afhenda, yrðu afhent ef óskað væri eftir þeim’, sagði embættismaður í Élysée.“

Ríkissaksóknari í fjármálamálum, Pascal Prache, sagði að misheppnuð húsleit hefði verið hluti af rannsókn á samningum um skipulagningu minningarathafna.

„Starfsfólk franska forsetaembættisins sagði rannsakendum að þeir gætu ekki leitað í Élysée-höllinni þar sem húsnæðið nýtur friðhelgi forseta,“ segir í yfirlýsingunni.