Vika6 – éttu kynjakex

Hvers eiga börnin okkar að gjalda? Hámenntað fólk er orðið svo ruglað í dag að það virðist lítið hafa við tímann annað að gera en að hamast í kynlífi og klámi og vera með kynáróður gagnvart börnunum. Að sjálfsögðu á að banna þennan perversisma sem Samfylkingin og aðrir vinstri menn bjóða upp á.

Hlynur Áskelsson og Sigfús Aðalsteinsson

Sem betur fer eru til heilbrigðir Íslendingar með skynsamar skoðanir. Fulltrúar flokksins okkar borg, þeir Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson skrifa grein í Vísi 13. apríl: „Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kyn­líf?“ Taka þeir fyrir fyrirbærið Viku6 hjá Reykjavíkurborg og gagnrýna harðlega, að engin grein er gerð fyrir fagmannlegum grunni „þeirrar viku þegar starfsfólk grunnskóla, leikskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta aldursviðeigandi kynfræðslu“ eins og orðrétt segir upplýsingum borgarinnar um Viku6.

Á hvaða fræðilega og gagnreynda grunni byggir kennsluefnið?

Í samantekt sinni segja þeir Sigfús og Hlynur að skýrt verði að liggja fyrir

„hvaða fræðilegar niðurstöður styðja við námsefnið og kennsluna. Það er ekki nóg að vísa lauslega í óljósar hugmyndir, það þarf að sýna fram á fræðilega ábyrgð og gagnreyndan vísindalegan þekkingargrunn.“

Í niðurstöðum sínum segja gagnrýnendurnir:

„Það er ljóst að umrædd Vika6 skortir ritrýndar, gagnreyndar og fræðilegar undirstöður. Kennsluefni af þessu tagi þarf að byggja á vönduðum rannsóknum, skýrum fræðilegum tilvísunum, faglegu eftirliti og samfélagslegri ábyrgð gagnvart börnum.“

Vika6 verði aflögð og öllum samningum um kynjafræðslu verði sagt upp

Reykjavíkurborg er ekki að sinna faglegri skyldu sinni með Viku6. Námsefnið, framsetningin og fyrirlögnin fær algjöra falleinkunn. Sigfús og Hlynur skrifa:

„Stefna Okkar Borgar er skýr:

  • Vika6 verður aflögð sem og Jafnréttisskóli Reykjavíkur
  • Öllum samningum um hinsegin- og kynjafræðslu í leik- og grunnskólum, íþróttafélögum, félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum verður sagt upp og henni hætt

Veljum gleði og von – Veljum Okkar Borg – Veljum X – R