Í umræðunni um transhugmyndafræði sem tröllríður vókismanum á Íslandi og er að eyðileggja réttindi kvenna og barna, þá kemur nafn Samtakanna 78 alltaf upp. Þeir hafa hlutast til með aðstoð vinstri stjórnmálamanna að sett voru haturslög sem S78 notar til að hóta einstaklingum sem gagnrýna transfárið og bola úr vinnu og með öðrum brögðum að eyðileggja líf þeirra. Þessu kynjafári verður að ljúka, konur eiga rétt á eigin sturtuklefum og íþróttagreinum. Banna á þátttöku karla sem þykjast vera konur til að vinna yfir konum í kvennaíþróttum af því að þeir geta ekkert í karlagreinum íþrótta.
Þjóðólfur birti nýlega grein um gagnrýni forsvarsmanna Okkar borgar á Viku6 fárið og hundruðum milljóna greiðslna af opinberu fé til Samtakanna 78 sem virðast geta hagað sér eins og ríki í ríkinu og fyrirskipað kennslu barna án þess að upplýsa foreldra um málið. Fleiri mál á Íslandi hafa vakið afar neikvæða mynd af landinu erlendis og má nefna sem dæmi það nýjasta, mál föður gegn yfirvöldum fyrir að taka af honum umráðarétt yfir syni sínum af því að hann gagnrýnir transstefnu móður sinnar og yfirvalda sem halda hlífiskildi yfir henni og svipta barnið eðlilegri umgengni við föður sinn.

Íris Erlingsdóttir minnir í nýju „meme” Miðflokkinn á að setja eftirfarandi inn á stefnuskrá sína:
- VIKA 6 VERÐI AFLÖGÐ SEM OG JAFNRÉTTISSKÓLI REYKJAVÍKUR
- ÖLLUM SAMNINGUM VIÐ SAMTÖKIN 78 VERÐI SAGT UPP
- MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR VERÐI LÖGÐ NIÐUR
Hver er stefna Miðflokksins í þessum málum?
Reykvíkingar eiga rétt á því að vita hver hún er áður en gengið er til kosninga í Reykjavík.
