Efnahagsstefna Írlands og Ungverjalands eru andstæður. Árið 2025 var hagvöxtur Ungverjalands 0,4% – í þriðja síðasta sæti meðal ESB þjóða, langt undir slöku meðaltali ESB sem var 1,5%. Á Írlandi—á gagnstæðum pólitískum fleti við Ungverjaland—jókst raunveruleg verg landsframleiðsla hins vegar um 12,3%, að mestu leyti vegna þess að það hefur faðmað glóbalistískar hagkerfishugmyndir.
Hagvöxtur Írlands er æðislegur – en aðeins á pappírnum
Síðan upp úr 1960 hefur írska stefnan verið sú að sækjast eftir erlendum fjárfestingum. Bandarísk fyrirtæki hafa fjárfest mikið á Írlandi – lágskattaleið til að komast inn á ESB-markaðinn. Með 12,3% hagvöxt myndi maður ætla að fólk væri dansandi á götum úti. En í stað þess hafa Írar flykkst út á götur landsins til að mótmæla háu eldsneytisverði.
Ekki er allt sem sýnist. 46% prósent af fyrirtækja-skatttekjum Írlands koma frá þremur bandarískum fyrirtækjum. Almenningur á Írlandi nýtur ekki góðs af 12.3% pappírshagvextinum, sem samanstendur af hagnaði frá bandarískum neytendum Mounjaro (megrunarlyfs) eða evrópskum kaupendum MacBook-tölva. Hagnaðurinn er bókaður á Írlandi í skattalegum tilgangi fyrir fyrirtækin sem framleiða þessar vörur.
Verg landsframleiðsla (GDP) er summa ríkisútgjalda, neyslu ríkis og einkaaðila, hreins útflutnings og fjárfestinga. Fyrir skattaskjól eins og Írland hafa tölur um síðustu tvo þættina engin raunhæf áhrif fyrir almenning. Apple heldur því fram í bókhaldslegum tilgangi að iPhone-símar séu fluttir út frá Írlandi til Evrópu, þó símarnir séu hannaðir í Ameríku, framleiddir í Kína og er pakkað á Indlandi.
Samkvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) eru tveir þriðju hlutar fjárfestinga á Írlandi „draugafjárfestingar“ — tómar fyrirtækjaskeljar
Viktor Orbán uppgötvaði eftir fyrsta kjörtímabil sitt sem forsætisráðherra lítils aðildarríkis Evrópusambandsins að án inngrips myndi Ungverjaland verða aðeins millifærslukerfi fyrir Evrópusambandið. ESB myndi nota Ungverjaland til að millifæra fjármuni, þar sem þeir hefðu stutt stopp og kippa þeim svo strax til baka.
Írland þarf að læra lexíuna sem Orbán nam: Fullveldi og lýðræði byggjast á eigin þjóð og þeim auðlindum sem aðeins hún ræður yfir.
Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur
