Spillingin í íslenskum stjórnmálum ríður ekki við einteyming. Núna hefur sætabrauðsparið Dagur B. Eggertsson og hin nýja hlaðvarpsmey hans, Þórdís Kolbrún Reykfjörð hist í eldhúsinu heima hjá Degi og séð með glöggum augum sprungu í gólfinu. Þau eru á flekaskilum og ætla að reyna að brúa þessa sprungu með samtali yfir kaffibolla. Það verða erfiðir bollar, þegar flekarnir hreyfast og þau týna fótunum, missa kaffibollana og hrapa beint ofan í sprunguna.
Þar eru þau bæði tvö best geymd og gleymd og af stjórnmálatröllum grafin ofan í eldhúsgólf Dags B. Eggertssonar, stórsvindlara Íslands sem gerðist innrásarvíkingur í líf Reykvíkinga og plagar með fasteignagjöldum, freðnum reiðhjólum og bílabanni. Borgarlínan verður banabiti Íslands og má fara með þeim skötuhjúum ofan í flekaskilin sem að sjálfsögðu liggja gegnum eldhús dagsins.
