Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, krefst þess að breska BBC dragi til baka heimildarmynd um 6. janúar 2021 og biðjist afsökunar á að hafa breytt ræðu hans fyrir árásina í þinghúsið. Lögmenn Trumps hafa sent BBC bréf og gefa BBC frest til klukkan 17 á föstudag – annars bíður málsókn og krafa um að minnsta kosti 1.000.000.000 Bandaríkjadala.
Bréfið er stílað á Samir Shah, stjórnarformann BBC, og Söruh Jones, lögfræðing.
Fulltrúi Trumps, lögmaðurinn Alejandro Brito, sakar BBC um að blekkja áhorfendur með klippingu í heimildarmyndinni „Trump, annað tækifæri“ (Trump: A Second Chance) sem var sýnd 28. október 2024.
Samkvæmt bréfinu var þeim hluta ræðu Trumps frá 6. janúar 2021 sleppt þar sem hann sagði:
„Ég veit að allir hér munu brátt ganga að þinghúsinu til að láta rödd sína heyrast friðsamlega og af þjóðrækni.“
BBC er hvatt til að birta tafarlaust leiðréttingu og afsökunarbeiðni, greiða skaðabætur og varðveita allt viðeigandi efni til undirbúnings fyrir hugsanlega málsókn. Lögmaður Trumps heldur því fram að hin grófa klipping sé meiðyrði samkvæmt lögum Flórída og að hún hafi valdið „yfirþyrmandi“ tjóni, bæði fjárhagslegu og einnig varðandi mannorð Trumps.
Í bréfinu er einnig skýr hótun um lagalegar aðgerðir ef fresturinn verður ekki virtur: Trump mun „grípa til allra tiltækra réttinda og úrræða“ og krefjast að minnsta kosti 1.000.000.000 dollara í skaðabætur.
BBC segist vera að fara yfir kröfuna. Talsmaður BBC segir við Fox News:
„Við munum fara yfir bréfið og svara beint þegar þar að kemur.“
Deilan hefur þegar haft afleiðingar fyrir æðstu stjórnendum fyrirtækisins. Forstjórinn Tim Davie og fréttastjórinn Deborah Turness hafa neyðst til að segja af sér vegna gagnrýni á klippingu heimildarmyndarinnar.
Trump skrifar á Truth Social:
„Yfirmenn hjá BBC, þar á meðal forstjórinn Tim Davie, eru allir að hætta/hafa verið reknir vegna þess að þeir voru gripnir við að „falsa“ mjög góða (FULLKOMNA!) ræðu mína 6. janúar.“

