Afbrotafræðingur: Hundrað fleiri undirbúa hryðjuverk í Svíþjóð

Sænski afbrotafræðingurinn Leif GW Persson varar við því að mun fleiri en hinn 18 ára gamli hryðjuverkamaður sem er ákærður fyrir undirbúning að hryðjuverki í Svíþjóð séu að skipuleggja svipuð ódæði í landinu. Jafnframt veltir hann því fyrir sér hvort handtakan hafi verið gerð of snemma.

Hinn ungi vígamaður er grunaður um fleiri glæpi tengdum Íslamska ríkinu, þar á meðal undirbúning hryðjuverka. Samkvæmt saksóknurum undirbjó hann sjálfsmorðsárás á Menningarhátíðina í Stokkhólmi í ágúst 2025.

Hann var handtekinn í febrúar eftir umfangsmikla leyniaðgerð leynilögreglunnar. Sautján ára gamall piltur var einnig ákærður á fimmtudag fyrir fleiri glæpi tengdum Íslamska ríkinu.

Í Morgunfréttum TV4 sagði Leif GW Persson að yfirvofandi ógn væri mun víðtækari en núverandi ákæra:

„Spurningin er ekki hvort við fáum hryðjuverkaárás af þeirri gerð sem við erum að tala um núna, heldur hvenær við fáum slíka árás.”

GW áætlar að fjöldi þeirra sem framkvæma svipaðar áætlanir séu langtum fleiri:

„Örugglega. Þeir hljóta að vera hundrað sinnum fleiri en hann.”

Samtímis telur hann að Leynilögreglunni skorti úrræði til að finna alla sem hafa ánetjast ofbeldishugmyndafræði heilagastríðsmanna:

„Þau úrræði eru ekki til staðar sem gerir þeim (lögreglunni/GS) kleift að ná þessum mönnum, þeim 99 sem ég tel að hafi ekki enn verið uppgötvaðir og tilheyra sömu hugmyndafræði. Og þetta er hættan.”

GW efast um að ákæran nái að ganga fram alla leið:

„Ef ég hefði haft umsjón með málinu, þá hefði ég látið hann komast aðeins lengra í undirbúningi glæpsins. Ég held að þeir hafi tekið hann aðeins of snemma.”

Réttarhöldin gegn hryðjuverkamanninum hefjast 11. nóvember.

Fara efst á síðu