KJÓSUM ÍSLAND – NEI VIÐ ESB!

(Mynd fengin hjá Íslandsvinum á Facebook).

Núna rúlla Viðreisn og Samfylkingin út stóra ESB-valtaranum yfir Ísland. Fram undan verða fjölmiðlar fullir af hallelúja-greinum og viðtölum sem dásama ESB svo Íslendingar fá glýju í augun. Hvorki mun sjást til sólar né fjalla vegna dýrðaróðsins.

Það er taktík Evrópusambandsins að fylla alla miðla útúr dyrum með lofsöng svo engin gagnrýni komist að sem gæti varpað skugga á paradís ESB. Vonast er til að skapa megi þvílíka upplýsingaóreiðu að þjóðin láti blekkjast og segi já í kosningunum.

Því ber að fagna öllum þeim sem elska föðurlandið og vilja sjálfir ráða eigin örlögum eins og forfeðurnir sem flúðu Harald hárfagra Noregskonung og sköpuðu sér skjól í einu harðbýlasta landi heims.

Sósíalisminn er genginn aftur en núna í nafni frjálshyggju og lýðræðis. ESB er samyrkjubúskapur sósíalismans að hætti Sovéts þeirra Leníns og Stalíns. Þess vegna er krafa ESB um yfirtöku löggjafans frá þjóðum sem láta tæla sig í sambandið. Það er svo langt frá einstaklingsfrelsi og frjálsum viðskiptum sem komast má sem samtímis skýrir þá efnahagslegu hnignun sem lamar alla álfuna. Þjóðlegi sósíalisminn er afturgenginn en núna undir heitinu alþjóðahyggja/glóbalizmi. Sem sagt alþjóðlegur sósíalismi, International socialism í staðinn fyrir þjóðlegan sósíalisma, National socialism. Internazism í staðinn fyrir Nazism.

Sem betur fer hafa Bandaríkjamenn séð í gegnum þetta og risið upp til verndunar málfrelsi og einstaklingsfrelsi og eignarhaldi landsmanna á eigin þjóð.

Þótt svínið sminki sig verður það samt sem áður alltaf svín.

Hugmyndafræðilegar árásir vókismans á Vesturlönd, eru árás sósíalismans á kapítalismann. Nazistar, kommúnistar, sósíalistar, og alls kyns alræðisöfl eru í samstarfi og vilja taka yfir Evrópu og síðan allan heiminn. Kommúnistaflokkur Kína, fasistarnir í Davos og Múslímska Bræðralagið vinna saman og markmiðið er að gera Vesturlönd að kommúnísku alræðisþjóðfélagi eins og Kína, þar sem fólk er ekki lengur til ef þeim verður sparkað út úr stafrænum heimi einræðisherranna.

Alræðissinnarnir eru skipulagðir í stofnunum eins og SÞ, WEF og ESB og krataflokkar eins og Samfylkingin vinna á bak við tjöldin í sósíalíska Internationalen. Þar eru gjörspilltir vinstri flokkar með leiðtogum eins og forsætisráðherrum Spánar og Bretlands, Magdalenu Anderson í Svíþjóð og Kristrúnu Frostadóttur á Íslandi.

ESB hefur tekið Kristrúnu Frostadóttur inn í hlýjuna og hleypt henni inn í hópa sambandsins sem hyggja á stríð gegn Rússlandi. Þar getur hún gortað sig á blaðamannafundum sem einn af leiðtogum þeirra „stóru“ í meira en 100 sinnum stærra ríki en pínuríkið Ísland.

Samtímis og valkyrjurnar breyta opinberum stofnunum Íslands í risavaxinn, skattfjármagnaðan fílakirkjugarð gegnum innanhúss vinnumiðlun þar sem útbrunnir og óhæfir flokksgæðingar eru verðlaunaðir með embættum forstjóra og stjórnenda ríkisstofnana og milljónir í laun, þá ausa þær milljörðum í fjölmiðlarekstur og styrki til að halda eigin áróðursvél gangandi. Valkyrjurnar eru ekki bara að gæða sér á því sem í pottunum finnst. Þær eru að stela öllu eldhúsinu.

Í samanburði við til dæmis Sjálfstæðisflokkinn sem setið hefur lengi að völdum og er ekki saklaus heldur, þá lítur Sjálfstæðisflokkurinn út eins saklaus barnakór við hliðina á valkyrjunum.

Látum ekki þetta fólk taka landið af okkur og segjum NEI! í kosningunum 29. ágúst.