Ákveðin öfl á Vesturlöndum ýta í örvæntingu á eftir „loftslagsmálinu“ en það er í rauninni „dautt“ segir Lars Bern. Hann bendir á að ef þessum stjórnmálamönnum tekst að draga úr „losun“ eins og þeir vilja „þá bíður algjört hrun Evrópu handan hornsins.“
Mikael Willgert og Lars Bern ræða um COP30 loftslagsráðstefnuna í Brasilíu. Færri leiðtogar heims sækja ráðstefnuna en áður. Sænska sjónvarpið SVT veltir því fyrir sér, hvort þetta gæti verið vegna þess að „það sé erfitt að ferðast“ þangað. Lars Bern segir:
„Þetta sýnir að loftslagsmálið er dautt. Það eru næstum því bara þessir fáránlegu Evrópumenn sem halda því lifandi. Stjórnmálamennirnir leiða Evrópu í hyldýpi allsherjarhruns.“
Evrópa hefur nú sett sér það markmið að losun gróðurhúsalofttegunda, þ.e. lofttegund lífsins koltvísýringur, skuli minnka um 90% frá 1990 til 2040, það er að segja á 50 árum.
Ef þeim tekst það, þá þýðir það allsherjarhrun fyrir Evrópu. Algjört efnahagslegt hrun. Og Evrópa er á leiðinni í efnahagslegt hyldýpi vegna þessarar stefnu. Samtímis á að heyja þetta stríð við Rússland sem þeir eru að undirbúa. Það má segja að forysta ESB hafi gjörsamlega misst vitið. Gjörsamlega. Þeir hafa engin tengsl við raunveruleikann.“
Svíþjóð er þegar í neðstu sætunum þegar kemur að „losun.“ Mikael Willgert bendir á:
„Það er 280 sinnum meiri losun frá Kína en frá litlu Svíþjóð.“
Lars Bern segist vera hryggur yfir þessari þróun í Evrópu:
„Þetta er hræðilegt. Samtímis gengur hinn hluti heims eins og klukkan.“
