Á miðvikudag mun framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birta áætlanir um „Miðstöð fyrir lýðræðislega seiglu.“ The Guardian greinir frá málinu og vitnar í gögn sem lekið hefur verið til fjölmiðla.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, tilkynnti áætlanir sínar um slíka miðstöð í september í ræðu á ESB-þinginu og fullyrti að þörfin væri „brýn.“
„Við þurfum meiri getu til að fylgjast með og greina upplýsingamisnotkun og rangfærslur. Við munum því stofna nýja evrópska miðstöð fyrir lýðræðislega seiglu.“
Margir ESB-þingmenn búuðu á von der Leyen sem svaraði með hrokafullri kaldhæðni:
„Þið óttist greinilega þessa nýju miðstöð!“
Stasi Evrópusambandsins
Frjálslyndir og rauðgrænir þingmenn Evrópuþingsins styðja hugmyndina um aukið eftirlit með öllu efni sem dreift er á bæði hefðbundnum miðlum sem og samfélagsmiðlum. Þeir telja nauðsynlegt að tryggja að almenningur í ríkjum ESB verði verndaður frá þeim möguleika að lesa eða hlusta á rangt efni.
Tillagan mætir andspyrnu frá hægri vængnum. Austurríski ESB-þingmaðurinn Roman Haider telur að hugmyndin minni á Austur-Þýskaland: „Guð minn almáttugur! Evrópsk miðstöð fyrir lýðræðislega seiglu.“ Hann hafði áður sagt að hann hafi aldrei heyrt jafn mikla fegrun á Stasi Evrópusambandsins:
„Lýðræði og tjáningarfrelsi fara hönd í hönd. Þegar yfirvöld og hagsmunahópar ákveða hvað á að flokka sem „rangfærslur“ eru þeir í raun að ákveða hvað borgarar mega og mega ekki segja. Þetta minnir mjög á sannleiksráðuneyti. Það er fáránlegt að innleiða ritskoðun í Evrópu, dulbúna sem verndun lýðræðisins.“
Áhersla á Rússland
Enn er óljóst hvað „lýðræðisleg seigla“ ESB mun gera nákvæmlega og hversu víðtæk völd hennar verða. Samkvæmt drögum sem The Guardian hefur séð er áherslan lögð á Rússland:
„Auk grimmdarlegs árásarstríðs gegn Úkraínu er Rússland einnig að auka blendingsárásir sínar og heyja áhrifastríð gegn Evrópu. Með því að dreifa villandi frásögnum, stundum með íhlutun og afbökun sögulegra staðreynda, þá er verið að reyna að grafa undan trausti á lýðræðislegu kerfunum.“
ESB mun birta gögnin á miðvikudag í þessari viku. Og þá munum við vita, hvort og ef svo er, hversu mikið og á hvaða hátt þeir sem eru við völd í Brussel hyggjast skerða enn frekar málfrelsi Evrópubúa.
