Stjörnurnar falla
Morgunblaðið birtir frétt um að ríkisstjórnin sé fallin sakmkvæmt könnun Gallup. Það er rétt þróun. Það er ekki hægt að treysta ráðherrum sem segja eitt og gera svo eitthvað allt annað. Vegferð ESB umsóknarmálsins er slíkt klúður að það er að engu hafandi. Eftir bréf Loga Kjartanssonar sem Þjóðólfur birti í dag er ljóst að utanríkisráðherra og ríkisstjórnin hefur ekki gert heimavinnuna varðandi auglýsta atkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu og hún í reynd ólögleg.
Morgunblaðið skrifar:
„Stuðningur við ríkisstjórnina mælist í fyrsta sinn undir fimmtíu prósentum samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Er það í takti við nýlega könnun Maskínu sem sýndi sömu niðurstöu.
Ríkisstjórnin mælist með 44% og 30 þingmenn af 63.
Þetta kemur fram á RÚV.
Þar segir að Sjálfstæðisflokkurinn bæti við sig fylgi og Vinstri græn nái inn manni.
Samfylkingin mælist með mest fylgi eða tæp 29 prósent. Sjálfstæðisflokkur mælist með 21 prósent og bætir við sig tveimur prósentustigum frá síðustu könnun.
Miðflokkurinn er með 19 prósent og Viðreisn tæp 11 prósent….Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. – 29. apríl 2026. Heildarúrtaksstærð var 10.484. Þátttökuhlutfall var 40,4 prósent.”
