Kaffihús í Berlín sem fær opinbera styrki bannar hvítum aðgang

Komið hefur í ljós að kaffihús í Berlín sem bannar hvítu fólki aðgang hefur hlotið umfangsmikla opinbera styrki. Valkostur Þýskalands, AFD, krefst þess að fjármögnunin verði stöðvuð. Flokksleiðtoginn Alice Weidel segir að „AFD mun tæma NGO-mýrina.“ Með því vísar hún til þeirra samtaka sem fá fé skattgreiðenda sem oft endar í fáranlegum verkefnum sem þessum.

Samtökin BIWOC Rising í hverfinu Kreuzberg reka vinnu- og samverurými með kaffihúsi. Starfsemin beinist að einstaklingum sem eru skilgreindir sem svartar og litaðar konur, sem og transvestítar og „ólíkynja“ einstaklingar með svipaðan bakgrunn.

Samkvæmt þýskum fjölmiðlum hefur verkefnið fengið yfir 662.000 evrur – sem samsvarar tæpum 100 milljónum íslenskra króna – í styrki frá ríkisáætlun á árunum 2021 til 2024.

Styrkirnir eru eyrnamerktir til að „styrkja lýðræðið“ og „vinna gegn öfgahyggju.“

Gagnrýnendur telja að fyrirkomulagið feli í sér að opinberlega fjármögnuð starfsemi takmarki aðgengi á grundvelli þjóðernisuppruna.

Flokksleiðtogi AFD, Alice Weidel, bregst harðlega við og krefst aðgerða. Í færslu á X skrifar hún:

„Kaffihús í Berlín sem bannar hvítum að koma inn var fjármagnað með 662.450 evrum af skattfé – úr sambandsáætluninni ‘Demokratie in Aktion!’. Hreinn rasismi! AfD mun tæma NGO-mýrina og stöðva sóun skattfjár í vinstri hugmyndafræði.“

Svipaðar umræður hafa áður átt sér stað í Þýskalandi. Meðal annars var safn í Dortmund gagnrýnt árið 2023 eftir að ákveðnir tímar voru aðeins opnir gestum sem ekki voru hvítir, í þeim tilgangi að skapa „öruggt svæði“ fyrir fólk frá þriðja heiminum.