Svíþjóð: Fæðingartíðni hrundi „nákvæmlega níu mánuðum“ eftir fjöldabólusetninguna

Mikael Willgert tv. og Nils Littorin th.

Fæðingartíðni í Svíþjóð hefur undanfarin ár lækkað verulega niður í nýja sögulega lægð. Í viðtali við Swebbtv tengir læknirinn Nils Littorin þróunina beint við fjöldabólusetninguna gegn covid-19. Hann segir:

„Nákvæmlega níu mánuðum eftir það fara fæðingartölur í Svíþjóð að lækka verulega.“

Í viðtali í þætti Mikael Willgert á Swebbtv (sjá að neðan) ræðir læknirinn Nils Littorin um minnkandi barneignir og lýsir þróuninni í Svíþjóð með sterkum orðum. Nils Littorin segir:

„Harmagedón, heimsendir eða Ragnarök í Svíþjóð verður ekki stórt stríð eða fjöldamorð, heldur einfaldlega það að við hættum að eignast börn.“

Samkvæmt Hagstofu Svíþjóðar, þá fæddust einungis 1.423 börn á hverjar 1.000 konur árið 2025 – lægsta hlutfall sem nokkru sinni hefur mælst í Svíþjóð. Og þróunin hefur verið stöðugt niður á við frá kórónuveirufaraldrinum.

Nils Littorin, sem einnig er formaður flokksins Malmölistans, bendir á að samdrátturinn samsvari miklu brottfalli miðað við fyrri ár:

„Ef þessi þróun heldur áfram mun íbúafjöldinn helmingast á nokkrum áratugum. Það er um að ræða 10.000 eða 15.000 börn sem fæðast ekki en hefðu átt að fæðast miðað við meðaltal fyrri áratuga.“

Samkvæmt Nils Littorin, sem tók þátt í „Læknaákallinu“ sem gagnrýndi fjöldabólusetninguna, er skýr tímaleg tenging við bólusetningarnar í faraldrinum.:

„Það er augljós tímaleg fylgni við fjöldabólusetningu ungra kvenna og karla, það er frjóa hluta íbúanna, sem átti sér stað vorið 2021. Nákvæmlega níu mánuðum eftir það fara fæðingartölur í Svíþjóð að lækka verulega.“

Þrátt fyrir augljósa tímalega fylgni milli fjöldabólusetningarinnar og metlágra fæðingartalna hefur engin vísindaleg rannsókn í Svíþjóð reynt að útskýra tengslin. „Lýðheilsan í Svíþjóð hefur ekki gert neitt svo ég viti.“

Mikael Willgert bendir á að málefnið sé svo mikilvægt að Swebbtv muni hafa sérstakan þátt um það.