Nýjasta slagorð Demókrata er hluti af heilaþvætti sem hvetur til ofbeldis.
Vinstrimenn keppast við að skrifa villandi útgáfur af skotárásinni á kvöldverði fréttaritara Hvíta hússins á Washington Hilton hótelinu sl. laugardagskvöld. atburðinum. Á sunnudagskvöldið, löngu eftir að lögregla og leyniþjónustan hafði veitt upplýsingar um árásarmanninn og skoðanir hans, ritaði Barack Obama á X: „Þó við vitum ekki hvað bjó að baki skotárásarinnar… í gær, er mikilvægt að við öll höfnum þeirri hugmynd að ofbeldi eigi heima í okkar lýðveldi.“ Obama lýgur að hinum 119 milljónum X áskrifenda sinna að mótíf árásarmannsins séu „óljós.”
Áður en lengra er haldið: Skv. fréttum fór byssumaður – 31 árs gamall kennari frá Kaliforníu – á hótelið, þar sem halda átti kvöldverðinn og ruddist í gegnum öryggiseftirlit. Honum tókst að komast nálægt veislusalnum þar sem kvöldverðargestir og Donald Trump forseti voru saman komnir, en var stöðvaður áður en hann komst inn í sjálfan salinn.

Þetta er þriðja morðtilræðið gegn Donald Trump á innan við tveimur árum. Því miður fer þeim fjölgandi í lýðræðisþjóðfélögum sem álíta pólitískt ofbeldi, jafnvel morð, vera eðlilegar og ásættanlegar lausnir á pólitískum ágreiningismálum. Það er ekki hægt að neita því að þessi „morðmenning” er sérstakt vandamál á vinstri vængnum. CNN og MSNBC veittu vettvang sófasérfræðingum sem þóttust sjá pólitískt „réttlæti” í morðunum á Charlie Kirk og Brian Thompson og jafnvel fögnuðu voðaverkunum.
Þetta kemur ekki á óvart eftir margra ára innrætingu leiðtoga Demókrata og vinstrisinnaðra álitsgjafa sem stöðugt kalla þá sem þeim eru ósammála fasista og rasista Donald Trump nasista og Hitler. Heilaþvottur virkar. Nýjasta slagorð Demókrata og leiðtoga þeirra í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, Hakeem Jeffries, er: „Hámarksstríð, alls staðar, alltaf.“ (Þeir hefðu getað sagt „hámarksandstaða“ eða „hámarksandóf,” en greinilega var „stríð” betra. Óneitanlega er kaldhæðnislegt að Demókratar vilja heyja „hámarksstríð“ gegn forseta Bandaríkjanna og pólitískum andstæðingum sínum á þingi, en ekki gegn íranska stjórnkerfinu).
Demókratar og vinstrimenn tala stöðugt um lýðræði og frelsi en boða í sömu andrá pólitískt ofbeldi til að þvinga heimsmynd sinni upp á aðra. Byssumaðurinn–sem er eins og allir vissu: raunveruleika- og framtíðarhorfafirrtur og heilaþveginn af fjölmiðlum vinstri TDS öfgamanna með–reyndi ekki aðeins að svipta annað fólk lífi, heldur einnig að svipta kjósendur lýðræðislegum réttindum sínum. Í nýlegum mótmælum í Bandaríkjunum undir slagorðinu Engir konungar (sem sagt er að Allen hafi tekið þátt í) mótmæltu þúsundir forseta sem vann bæði meirihluta greiddra atkvæða og yfirgnæfandi meirihluta í kjörmannaráðinu (Electoral College). Að gagnrýna valdastéttina er nauðsynlegt, en að láta sem hún sé samansafn ókjörinna harðstjóra, eins og vinstrið gerir, ber eins og rithöfundurinn Andrew Doyle bendir á, vott um fávisku.

Doyle kennir um barnalegri menningu og veiku menntakerfi og segir að til þess að snúa við þessari óheillaþróun verði að beina sjónum að skólakerfinu, sem hefur hafnað sannleikanum fyrir „lifaða reynslu“ og „öðruvísi staðreyndir.“ Okkar marxísku menntastofnanir setja tilfinningar ofar skynsemi og gagnrýnni hugsun, segir Doyle. Það er nógu slæmt að menntakerfið hafi svo illa brugðist manni eins og Allen, að hann getur ekki hugsað eins og fullorðinn maður, en enn verra er að samfélag okkar skuli gera svo lágar kröfur að hann sjálfur gat orðið kennari.
Doyle skrifar: „Ímyndið ykkur menntakerfi sem kennir ungu fólki að skilja að heimurinn verður ekki sniðinn að duttlungum þeirra og að stjórnmál snúast ekki um að þröngva eigin vilja upp á aðra, heldur að ræða fjölbreytileg sjónarmið. Ímyndið ykkur kynslóð sem er það vel menntuð að hún hefur visku til að vita hve lítið hún veit og sem hefur ánægju af því að láta ögra skoðunum sínum eða a.m.k. hefur þá grundvallarþekkingu í mannkynssögu sem kæmi í veg fyrir að álitsgjafar og stjórnmálamenn kalli alla nasista sem eru þeim ósammála.
Fólk sem grípur til vopna gegn pólitískum andstæðingum sínum hefur aldrei náð fullum andlegum þroska. Viðbrögð þess eru eins og skapofsaköst smábarna. Þessi síðasta morðtilraun á Donald Trump er einfaldlega enn eitt einkenni okkar smábarnavæddu menningar.”

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur
