Einn Akureyringur vakti athygli Þjóðólfs á tilkomu íslamskrar mosku á Akureyri. Með fylgdi mynd af tilkynningu um moskuna ásamt að því virtist símanúmeri sem hafði verið límt inn á glugga í húsnæði í bænum. Greinilega er kristin trú á undanhaldi, þegar múslímar eru orðnir það margir að bygging mosku er komin á dagskrá. Það verður nýtt innlag í bæjarlífið, þegar bænahróp moskunnar yfirgnæfir kirkjuklukkur hinnar fallegu Akureyrarkirkju fimm sinnum á dag og minnir á yfirtöku íslam á hinum vestræna heimi.
Árið 2015 var afstaða Akureyringa til mosku könnuð og voru 61% Akureyringa á móti því að byggð yrði moska. 39% voru því fylgjandi. Athygli vakti með tilliti til menntunar að einungis hjá háskólamenntuðu fólki var meirihluti fyrir byggingu mosku. 75% iðnaðarmanna og 73% þeirra með grunnskólapróf voru andvígir mosku. Hjá stúdentum var andstaðan 64%. Hjá fólki með háskólagráðu brá hins vegar svo við að 54% voru fylgjandi byggingu mosku á Akureyri en 46% á móti.

Myndin að neðan sýnir tilkynningu um nýju moskuna á Akureyri: Akureyri Moskan

