Ríkisstjórnin hefur yfirgefið landsmenn og er horfin í ESB myrkrið

Ríkisstjórnin einangrar sig sífellt meira frá landsmönnum. Inga Sæland sem þykist vera vinur litla mannsins stóð ekki við loforð sín um fjárstyrk til Fjölskylduhjálparinnar samtímis og flokkur Ingu Sæland tókst að hafa sjö sinnum stærri upphæð á röngum forsendum úr ríkissjóði sem flokkur sem var skúffufyrirtæki í eldhúsi formannsins. Fjölskylduhjálpin sem aðstoðaði hundruð fátækra með mat neyddist til að loka. Kristrún Frostadóttir ákvað að skera niður framlag til Ljóssins um 40% eða 200 milljónir krónur en Ljósið hefur hjálpað þúsundum krabbameinssjúklingum í erfiðri baráttu sinni og samtímis sparað ríkinu milljarða króna með starfseminni. Þá hefur ríkisstjórnin einnig skorið niður framlög til stofnana eins og SÁÁ, Samhjálpar, Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Parkinsonsamtakanna og Krýsuvíkursamtakanna.

Á sama tíma hefur fé verið ausið í Úkraínustríðið, hinsegin samtök innanlands og í útlöndum og núna er þjóðinni storkað með tveggja milljarða kostnaði til að kíkja í pakkann sem þegar var gert 2009 og allir nema ríkisstjórnin sáu að ESB er ekkert að opna fyrir umræður um aðlögunarumræður, heldur eru aðlögunarviðræðurnar innlimunarferli í Evrópusambandið. Spurningin er: Ætlið þið að koma inn eða ekki – já eða nei.

Ríkisstjórnin hefur í verki sýnt að hún er óvinur landsmanna. Sálarlaus og hörð eins og andlitslausra búrókrata er siður sem kennt er í nýrri sovétmiðstöð meginlandsins.

ESB hefur tekið yfir ríkisstjórn Ísland og stjórnar öllu kosningaferlinu, tímasetningunni og háttalagi ríkisstjórnarinnar. Valkyrjurnar hafa gefið sig á vald sovétsins í Brussel og gera bara það sem embættismennirnir þar segja þeim að gera. Í pottinum fyrir valkyrjurnar er hugsanlegt draumastarf í hallarkynnum framkvæmdastjórnarinnar í Brussel með tugum milljónum í laun með tilheyrandi skattfríðindum. Að svíkja land sitt gefur aðgöngumiða að sæti við veisluborðið í hallarkynnum kommissjóneranna í Brussel.

Íslendingar þurfa að bretta upp ermarnar, spýta í lófana og henda þessum svikurum úr opinberum embættum þjóðarinnar og krefjast nýrra kosninga svo hægt verði að færa ljósið aftur á sinn stað yfir landinu.