Dómstóll sakfellir ríkið eftir bólusetningardauða – fjölskylda fær 300.000 evrur

Grískur dómstóll sakfellir ríkið eftir andlát tengt covid-bóluefni. Dómurinn er talinn söguleg tímamót og gæti opnað fyrir fleiri dómsmál. Fyrir marga sem hafa orðið fyrir skaða vaknar nú von um uppreisn æru.

Dómstóll í Aþenu hefur dæmt gríska ríkið til að greiða 300.000 evrur til fjölskyldu konu sem lést eftir covid-bólusetningu. Dómnum er lýst sem fordæmisgefandi og hann gæti haft þýðingu fyrir sambærileg mál í Evrópu.

Konan lést eftir að hafa fengið alvarlega fylgikvilla eftir að hafa fengið bóluefni frá AstraZeneca. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ríkið bæri ábyrgð og fyrirskipaði skaðabætur til aðstandenda.

Samkvæmt Athens News komst dómstóllinn að því að orsakatengsl væru milli bólusetningarinnar og andlátsins, sem lá til grundvallar bótunum.

Þetta er óvenjuleg niðurstaða, þar sem ríki í mörgum löndum hafa hingað til komist hjá ábyrgð í málum tengdum covid-bóluefnum.

Nýr sigur fyrir fórnarlömb bóluefnanna

Dómurinn kemur skömmu eftir framgöngu annara réttarhalda tengdum bóluefnaskaða í Evrópu og er talinn enn eitt merkið um að málið sé núna loksins að komast í alvöru í ferli réttarfarskerfisins.

Margir sérfræðingar telja að ákvörðunin geti opnað dyr fyrir fleiri fjölskyldur til að leita uppreisnar æru. Samkvæmt Novinite eru bætur upp á 300.000 evrur meðal mest áberandi ákvarðana hingað til í evrópsku máli um bóluefnaskaða.

Getur rutt brautina fyrir fleiri mál

Málið vekur einnig spurningar um ábyrgð þegar ríkið mælir með eða knýr fram bólusetningu en þeir sem verða fyrir skaða eru síðar skildir eftir án stuðnings.

Eftir því sem fleiri mál rata fyrir dómstóla gæti þrýstingur aukist á önnur lönd að endurskoða hvernig bóluefnaskaði er meðhöndlaður. Á samfélagsmiðlum er dómurinn sagður marka tímamót í baráttunni gegn skaðlegum afleiðingum hinna svo kölluðu „bóluefna.”

„Þetta er að byrja“ skrifar Peter Sweden á X: