ESB ætlar að lána 8x fjárlög íslenska ríkisins, um 13,400 milljarða íslenskra króna og senda til Úkraínu. „Fólkið í Evrópu hefur verið hlunnfarið eina ferðina enn” skrifar fyrrverandi forseti Rússlands, Dmitry Medvedev á X.
Hið gríðarlega lán upp á 90 milljarða evra er sem næst tilbúið og ríkisstjórnir vissra aðildarríkja ESB fagna svindlinu sem að hluta til kemur til baka í vopnakaup.
Fv. forseti Rússlands, Dmitry Medvedev, segir að verið sé að blekkja almenning í Evrópu, því peningarnir munu aldrei verða borgaðir til baka. Hann skrifar á X:
„ESB hefur loksins veitt hið langþráða lán til þjófsins í Kænugarði og peningana þarf ekki að endurgreiða. Því í fáránlegri rökfræði Brussel á Rússland að borga reikninginn. Njótið þess að vera blekkt eina ferðina enn, Evrópubúar, þetta eru 90 milljarðar evra sem teknir eru úr vösum ykkar!“
