Í ekkifrétt Morgunblaðsins er þetta helst…
Morgunblaðið greindi í gær frá glæpum á Oslo S, aðalbrautarstöðinni í Ósló, höfuðborg Noregs. Öryggisverðir stöðvarinnar, þar sem 150.000 manns leggja leið sína dag hvern, segja að brautarstöðin sé „orðin gróðrarstía gengjaátaka, fíkniefnasölu og annarrar brotatengdrar starfsemi.” Í samtali við norska ríkisútvarpið NRK segjast tveir öryggisverðir Oslo S hafa „sætt spörkum, stungum og bitum auk þess sem „sérstaklega illa innrættir gestir hafa reynt að stinga þau.” Verðirnir segja „hópslagsmál og dauðsföll nú vera nánast daglegt brauð í félagslegum raunveruleika þessarar skandinavísku höfuðborgar.”
Aðalfréttin í þessari frétt er að sjálfsögðu um það sem ekki er minnst á: hverjir eru þessir „sérstaklega illa innrættu gestir” sem fremja alla þessa glæpi?
SaLTo (Samarbeid om Løsninger og Tiltak) skýrslan frá 2023 staðfestir að „eitt megineinkenni glæpa í Noregi er hátt hlutfall innflytjenda, sérstaklega frá löndum utan Vesturlanda.” Gögn frá Hagstofu Noregs fyrir árin 2020–2023 staðfesta þessa þróun; innflytjendur eru um 20% ákærðra þrátt fyrir að vera um 18% af íbúafjöldanum. Þrátt fyrir að vera 33% af íbúum Oslóar frömdu innflytjendur nær 70% allra ofbeldisglæpa (alvarlegt líkamstjón) þar árið 2019.
„Jafnvel eftir að leiðrétt hefur verið fyrir félags- og efnahagslega þætti (bótakerfi Noregs er eitt hið örlátasta í heimi), eins og atvinnu og menntun, er glæpatíðni meðal einstaklinga af erlendum uppruna um tvöfalt hærri en innfæddra Norðmanna.”
Samkvæmt SaLTo eru „77% ungra síbrotamanna í Osló af innflytjendabakgrunni, aðallega frá löndum utan Vesturlanda… glæpir meðal barna jukust um 51% á tímabilinu.” Aukning glæpa frömdum af barnagengjum hefur farið saman við aukningu fjölda innflytjenda.
Í grein Mbl. segir að lögreglustjóri Oslóar sé meðal þeirra „sem ítrekað hafa varað við stóraukningu skipulagðrar glæpastarfsemi í Ósló.” Öryggisverðir Oslo S segja, „við sjáum nú æ yngri börn fremja glæpi.”
The Telegraph fjallaði í nóv. sl. um börn sem eru of ung til að sæta ákæru og fremja glæpi á vegum glæpagengja í höfuðborg Noregs: „glæpagengið Foxtrot er eitt miskunnarlausasta glæpanet Evrópu… Rawa ,kúrdíski refurinn’ Majid, leiðtogi samtakanna, gefur skipanir sínar frá Íran – þar sem hann býr undir vernd klerkaræðisins… Skotárás tengd Foxtrot á síðasta ári átti sér stað á heimili í Sarpsborg og var að sögn framkvæmd af þremur drengjum á aldrinum 12, 13 og 14 ára. Gengi eins og Foxtrot beina spjótum sínum að Noregi og skandinavískum löndum vegna þess að réttarkerfi þessara landa hvorki ákæra né refsa ofbeldi þegar það er framið af börnum.
,Við verðum að vera heiðarleg um eitt: flest þessara barna eru af innflytjendabakgrunni,’ segir Mahmoud Farahmand, þingmaður fyrir stjórnarandstöðuflokkinn Hægriflokkinn.
Í Strømmen, niðurníddu úthverfi þar sem börn sem skrópa úr skóla og aka um á rafhlaupahjólum, forðast fólk að tala við fjölmiðla. „Ég vil ekki tala um þetta og enginn annar hér talar ensku,“ segir ein kona, starfsmaður veitingahúss.”
Innflytjendur (íbúar fæddir erlendis) í Noregi telja nú yfir 880.000 manns, sem jafngildir 17,5% af heildaríbúafjölda landsins (afkomendur fæddir í Noregi af innflytjendum hækka hlutfallið í yfir 21%), Árið 1992 voru innflytjendur 4.2% af íbúum Noregs. Sögulega séð hafa algengustu upprunalönd innflytjenda verið Svíþjóð, Pólland og Þýskaland, en á undanförnum árum hafa flestir innflytjendur til Noregs verið frá Sómalíu, Erítreu, Sýrlandi, Írak og Pakistan. Norsk yfirvöld telja alvarlegustu hryðjuverkaógnina stafa af íslömskum öfgamönnum. Í áhættumati kemur fram að „yfirlýsingar eða athafnir sem eru taldar móðga íslamstrú geta stuðlað að róttækra öfga og hvatt til hryðjuverka í Noregi.“

Hvað varðar ofbeldis- og misnotkunarglæpi er hlutfall ákærðra meðal afrískra innflytjenda mjög hátt; meira en 11 sinnum fleiri ákærur en á hendur Norðmönnum án innflytjendabakgrunns. Sómalir höfðu 15 sinnum fleiri ákærur fyrir slíka glæpi.
Á árunum 2020 – 2023 voru u.þ.b. 2,200 ákærur á hendur hverjum 1,000 sómölskum körlum á aldrinum 15 – 24 ára (um 2,200 ákærur per 1,000 menn úr þessum lýðfræðilega hópi, þ.e. „ungir sómalskir menn í þessum lýðfræðilega hópi höfðu yfir 2 ákærur á mann á þessum þremur árum”). Til samanburðar voru 210 ákærur per aðra 1,000 karlkyns íbúa Oslóar.
sso.no statistisk sentralbyrå, researchgate.net, Grokipedia, The Telegraph, scup.com (Journal of Scandinavian Criminology)

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur
