GUÐ FYRIRGEFUR – NÁTTÚRAN EKKI

Hinsegin stefnan er orðin að hinsegin einræði á Íslandi

Íris Erlingsdóttir tók viðtal við séra Jakob Rolland, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi en hann sætir nú furðulegri og skammarlegri lögreglurannsókn vegna kristinnar trúar sinnar og boðskap drottins sem skapaði mann og konu í sinni mynd til að fylla jörðina afkomendum sínum. 

Afskipti hinsegin samtakanna 78 og árásir á kanslara kaþólsku kirkjunnar hefur víða vakið athygli erlendis og er síst til þess fallið að efla jákvæða ímynd Íslands. Sannleikurinn er sá að ofstæki hugmyndafræðinga á launum hins opinbera aðallega í transmálum er orðin ólíðandi skömm fyrir stjórnarfarið.

Séra Jakob Rolland segir frá stöðu máls sem bæði skortir þolanda og geranda og lögreglan hefur sem betur fer ekki yfirheyrt prestinn fyrir þann glæp sem kaþólska kirkjan boðar. 

Það er ekki að því að spyrja að það voru Samtökin 78 sem klíndu þessari lögreglurannsókn á prestinn. Íris Erlingsdóttir gjörþekkir transmálin á Íslandi sem hafa slegið blindu í þjóðina. Ef marka má fréttir telur biskup íslensku þjóðkirkjunnar áróður Samtakanna 78 vera mikilvægari í skólum landsins en boðskap Krists enda hefur kristinfræðsla verið afnumin í barnaskólum en kynjarugl S78 sett í staðinn.

Séra Jakop telur að hinsegin stefnan sé orðin að hinsegin einræði á Íslandi. Fólk me stöðu í þjóðfélaginu þori ekki að tala af ótta við að kippt verði undan afkomu þeirra. Hann segir mikinn heilaþvott hafa verið í gangi í landinu.

Sagt er að það ríki trúfrelsi á Íslandi. En hver er staða þeirrar kirkju sem boðar fagnaðarerindi Jesús Krists, þegar hún og forsvarsmenn hennar eru með stöðu sakbornings fyrir að halda því fram að kynin séu tvö og hið náttúrulega sé að maður og kona eignist saman börn? Eða eins og séra Jakob Rolland orðar það:

GUÐ FYRIRGEFUR – NÁTTÚRAN EKKI.

Hlustaðu á viðtalið í spilaranum hér að neðan: