Á Facebooksíðu Þjóðfrelsis er eftirfarandi tilkynning birt:
„Samtökin Þjóðfrelsi krefjast afhendingu leyniskjala utanríkisráðherra vegna ESB
Mál þetta varðar alvarlegar athugasemdir kærenda, samtakanna Þjóðfrelsis, við utanríkisráðherra Íslands í tengslum við tilraunir hennar til að lögfesta svonefnda Bókun 35 við EES-samninginn í íslensk lög. Að mati kærenda hafi hún hvorki virt stjórnarskrá íslenska lýðveldisins né landslög við meðferð málsins.
Kærendur telja að núverandi utanríkisráðherra hafi jafnframt bætt verulega í afrekaskrá sína með embættisathöfnum sem lúta ekki aðeins að Bókun 35 heldur einnig að pólitískri aðlögun Íslands að Evrópusambandinu, meðferð trúnaðargagna og framlagningu tillagna um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið eða nýja umsókn. Af þessum sökum hefur ráðherrann verið kærður fyrir háttsemi sem kærendur telja geti varðað við ákvæði almennra hegningarlaga um brot gegn sjálfstæði og stjórnskipan íslenska ríkisins.
Með þessu bréfi lögmanns Þjóðfrelsis, sem hér fylgir er því ítrekuð krafa um að ríkislögreglustjóri taki málið aftur til efnislegrar rannsóknar, afli þeirra gagna sem kunna að varpa ljósi á sakarefnið og veiti kærendum, eftir atvikum í gegnum umboðsmann þeirra, aðgang að þeim gögnum sem varða stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu, fyrirhugaða aðlögun að regluverki þess og möguleg áhrif á fullveldi, stjórnskipan og lýðræðislegan sjálfsákvörðunarrétt íslensku þjóðarinnar.”
Undir bréfið ritar lögmaður hópsins, Arnar Þór Jónsson.
Bréf Arnars Þór Jónssonar lögmanns f.h. Þjóðfrelsis til RLS er hér að neðan í pdf og einnig má nálgast það hér: https://archive.org/…/ath-j-til-rls-f.h.-thjodfrelsis-3…
