Skjöldur utanríkisnefndar um myrkraverk ríkisstjórnarinnar og ESB

Þá höfum við kynnst því, hvernig lýðræðisskjöldur Evrópusambandsins virkar: Einungis ESB-sinnar mega ákveða hvað eru upplýsingar. Ríkisstjórnin sem básúnar því að hún treysti þjóðinni fyrir atkvæðagreiðslunni í lok ágúst treystir greinilega almenningi svo lítið að hún þorir ekki að gera einfaldar upplýsingar opinberar af samskiptum við Von der Leyen og aðra ofurbúrókrata ESB í Brussel. Með öðrum orðum, þá þola tengsl ríkisstjórnarinnar við ESB ekki dagsins ljós.

Það er hámark kaldhæðninnar að fyrrverandi fréttamaður RÚV er látinn flytja skilaboðin frá Brussel gegnum íslensku ríkisstjórnina að stjórnarandstöðunni verða engar frekari upplýsingar veittar. Lýðræðinu er stungið undir stól og í prinsíp er Íslendingum sagt að þegja og leyfa keyptum sem ókeyptum ESB-sinnum að starfa óhindrað að takmarki ESB að ná völdum á Íslandi. ESB-sinnar á þingi vonast til að þeir fái væna súpu í askinn frá andlitslausa kerfinu í Brussel fyrir vel unnin störf. ESB mun borga sölumönnum landsins vel fyrir hjálpina að svíkja þjóðina inn í ESB.

Sameiginlegar auðlindir landsmanna verða að peningum í höndum fárra útvaldra, Kristrún og Þorgerður tryggja velmegun sín og sinna það sem eftir er fyrir að koma 200 mílna landhelgi með öllu því sem í sjónum er og á hafsbotni undir völd ESB. Engu máli skiptir um hvað spurt er, gæti alveg eins verið finnst þér góður rjómaís? Bara að svarið verði já. Þá verður ekki aftur snúið.

Ég er ríkið sagði Þorgerður. Bæta má við mátturinn og dýrðin. Fólkið sem byggir landið hefur ekkert um málin að segja. Þrátt fyrir að allar upplýsingar liggi fyrir um að þjóðin verði svínbeygð við inngöngu í ESB, halda valkyrjurnar slóttugum söng sínum um gull og græns skóga, ef Íslendingar samþykkja að afhenda ESB sjálfsákvörðunarréttinn.

Og á Bessastöðum bíður forsetinn með tilbúinn pennann til að skrifa undir afsal þjóðarinnar til hins nýja stórveldis sem er í óða önn að hervæðast fyrir komandi stórstyrjöld við Rússa.

Það er kaldhæðni örlaganna að fyrrum fréttamaður RÚV kemur fram fyrir hönd þeirrar ríkisstjórnar sem fótum treður málfrelsið með því að neita stjórnarandstæðingum um einfaldar upplýsingar úr samrunaferli Íslands við ESB.