Pólland er síðasta vígi Evrópu gegn fjöldainnflutningi, heilagastríðshyggju og menningarlegri hnignum

Pólski ESB-þingmaðurinn Dominik Tarczyński ræðir um Evrópu nútímans og framtíð álfunnar í mögnuðu viðtali (sjá YouTube að neðan). Hann er ekkert að skafa af hlutunum. Hann fullyrðir að Pólland sé síðasta vígi Evrópu gegn fjöldainnflytjendum, íslamisma og menningarlegri hnignun. Þrátt fyrir að forsætisráðherrann sé ESB-sinni, þá heldur íhaldsflokkurinn Lög og réttlæti sem Dominik Tarczyński tilheyrir enn forsetaembættinu. Tarczyński bendir á Pólland sem bjargvætt við þeim áskorunum og vandamálum sem ESB stendur frammi fyrir. Hann telur að enn sé von um að hægt sé að takast á við erfiðleika álfunnar en þar verður Svíþjóð að undantekningunni og er þegar glötuð.

Í hlaðvarpinu Heretics, með breska blaðamanninum Andrew Gold, ræðir pólski stjórnmálamaðurinn á opinskáan hátt um þróun mála í Evrópu og hvað þarf til að snúa henni við.

Tarczyński, sem er þekktur fyrir yfirlýsingu sína um að Pólland muni ekki taka á móti „neinum ólöglegum innflytjanda“ útskýrir, hvers vegna Pólland hefur staðið gegn sókn ESB um að opna landamærin fyrir fjöldainnflytjendum frá þriðja heiminum. Hann telur að önnur ESB-ríki greiði hátt verð fyrir flóttamannastefnu ESB.

Líkir vandanum við krabbamein

Pólitískt hugleysi, hugmyndafræðin að baki opnum landamærum og menningarleg sjálfsgagnrýni hafa breytt fyrrum stórþjóðum Evrópu í skugga af sjálfum sér samkvæmt Tarczyński:

„Ég fæ oft hrós „ó, þú ert ótrúlegur, ég elska ræðurnar þínar, þú hefur rétt fyrir þér, ég get ekki sagt það sem þú segir upphátt því þá mun ég missa vinnuna, fjölskylda mín er klofin.“ Þú munt missa vinnuna þína, þú munt missa fjölskylduna þína og þú gætir misst lífið ef þú ert huglaus.

Þetta er eins og fyrstu einkenni þess að eitthvað sé að líkamanum. Ef við segjum: Ó, ég er með verk, tönnin mín er aum en ég þori ekki að fara til tannlæknis, þá verður það alvarlegt vandamál. Það sama gerist þegar þú færð fyrstu einkenni mjög alvarlegs sjúkdóms, krabbameins eða hvað sem er. Þú veist að það gæti verið alvarlegt, en þú þorir ekki að fara til læknis og þá verður allt um seinan. Láttu ekki óttann stöðva þig. Bregðumst við núna, björgum Evrópu.“

Svíþjóð er glötuð

Blaðamaðurinn spyr Tarczyński hvernig hann líti á þau lönd þar sem fjöldainnflutningur hefur gengið mjög langt og vandamálin eru orðin umfangsmikil og nefnir Svíþjóð og einnig Danmörku og Írland í því sambandi. Hann veltir einnig fyrir sér, hvort það sé ekki orðið vonlaust að bjarga þessum löndum.

Tarczyński segir að von sé alltaf fyrir hendi og bendir á að Pólland hvarf af landakortinu í 123 ár. Pólski þingmaðurinn gagnrýnir Svíþjóð harðlega og gefur lítið fyrir lausnir núverandi ríkisstjórnar Svíþjóðar. Hann segir Svíþjóð vera glataða.

Hann bendir meðal annars á félagsleg vandamál, ört vaxandi glæpatíðni og hliðarsamfélög með svo kölluðum „bannsvæðum“ sem dæmi um hvernig sænska samfélagið hefur hrunið:

„Það er alltaf von en Svíþjóð er glötuð. Þeir þurfa á byltingu að halda, mér líkar ekki það orð en ástand landsins eftir meira en 100 ára sósíalisma er mjög slæmt. Bannsvæðin (no go zone) eru veruleiki.

Ég fékk að heyra: „Ekki segja að við höfum bannsvæði, því opinberlega þá höfum við þau ekki.“ Auðvitað eru bannsvæðin ekki auglýst, það er ekki minnst á þau daglega. Samt veit almenningur um allan heim að þetta eru svæði sem maður heimsækir ekki. Svíum vantar einhvern ábyrgan eins og Giuliani í New York með núll áætlun, þar sem núll þýðir í raun og veru núll.“

Svíar ekki tilbúnir

Pólski ESB-stjórnmálamaðurinn telur að Svíar þurfi að upplifa sársauka til að skilja hvað raunverulegt frelsi þýðir:

„En ég veit ekki hvort Svíar eru tilbúnir. Stundum þarf maður að ganga í gegnum mikinn sársauka til að skilja hvað sársaukalaust líf er. Pólland hefur gengið í gegnum svo margt, við vorum þrælar í svo mörg ár. Við vitum hvað frelsi er, við skiljum að það má aldrei aftur hleypa nasistum og kommúnistum og núna heilagastríðsmönnum í valdastólana.“

Hann leggur áherslu á núll-stefnu Póllands gegn ólöglegum innflytjendum og segir hana fyrirmynd hvernig hægt sé að bjarga Evrópu. Hann gagnrýnir að Vestur-Evrópa hefur snúið sér að „umburðarlyndi“ sem hann telur vera uppgjöf, þar sem þaggað er niður í þeim sem þora að verja þjóðarvitundina.

Hér er bútur um Svíþjóð og þar fyrir neðan svo viðtalið í heild:

Allt viðtalið hér að neðan:

Fara efst á síðu