Faðir Elon Musk segir Bandaríkin illa stödd ef hvítir verða minnihlutahópur

Faðir Elon Musk, kaupsýslumaðurinn Errol Musk, varar við því að Bandaríkin séu „dauðadæmd“ – hann sér enga framtíð fyrir landið þegar hvítir Bandaríkjamenn verða ekki lengur í meirihluta. Hann spyr vinstri sinnaðan blaðamann CNN: „Viltu fara aftur í frumskóginn?

Errol Musk var í viðtali hjá Donie O’Sullivan hjá CNN (sjá X að neðan). Þeir ræða meðal annars heimildarmyndina Hvítt þjóðarmorð (White Genocide) sem fjallar um að yfir standi þjóðarmorð á hvítu fólki, bændum í Suður-Afríku. Bæði Elon Musk og Donald Trump hafa komið með ásakanir þess efnis.

O’Sullivan ræðir nýjar íbúaspár fyrir Bandaríkin, þar sem búist er við að hvíti hluti þjóðarinnar verði kominn í minnihluta innan um 20 ára. Samkvæmt tölum sem rætt var um í þættinum gætu ýmsar minnihlutahópar þá samanlagt verið 51% bandarísku þjóðarinnar, þar af 24,6% Latínóar, 13,1% svartir og 7,9% Asíubúar. O’Sullivan segir sigri hrósandi að „Bandaríkin verða innan 20 ára í fyrsta skipti í sögunni að landi, þar sem hvítir verða í minnihluta.“

Errol Musk bregst hart við fullyrðingunni:

„Þetta verður mjög, mjög slæmt. Viltu sjá Bandaríkin fara á hausinn? Af hverju? Líkar þér ekki við bíla eða rafmagnsbíla? Líkar þér ekki tækni? Eða hvað er það? Viltu fara aftur í frumskóginn?“

Errol Musk bendir á þátt hvíta mannsins í uppbyggingu Suður-Afríku en augljóslega reynir CNN að klína rasistastimplinum á Musk sem sagði:

„Maður byrjar ekki með 800.000 manns sem verða 50 milljónir ef maður fær ekki mat. Við gáfum þeim mat.“

O’Sullivan andmælti og sagði að Musk hefði misst af kúgun svartra undir aðskilnaðarstefnunni, vegna þess að „þú ert hvítur.“

Fara efst á síðu