Verður eldfjallaskattur á Íslandi?

Gústaf Níelsson sagnfræðingur tekur undir með sænska kónginum að lítið velsæmi sé í ofurskattlagningu vegna loftslagsins en nýlega vakti spurning Svíakonungs mikla athygli, þegar hann spurði hversu mikið ætti eiginlega að borga fyrir loftslagið. Í raun ætti ekki að vera hægt að skatta loftslagið eins og Evrópusambandið gerir, því hamfarahlýnun jarðar er svo mikil þvæla að jafnvel auðjöfrar eins og Bill Gates runnu á rassinn með það. Sagnfræðingurinn spyr: „Hvað kemur næst? Eldfjallaskattur á Íslandi?“

Fregnir berast af dvínandi áhuga á loftslagsmaníu Sameinuðu þjóðanna og mæting á nýjustu loftslagsráðstefnuna í Brasilíu er bara helmingur af því fína fólki miðað við áður, sem gæðir sér á kræsingum á kostnað skattgreiðenda og þykist vera að bjarga heiminum. Sannleikurinn er sá að það verður að jarða þessa þvælu svo hægt verði að bjarga heiminum, alla vega ESB sem er að skattleggja aðildarríkin og önnur samstarfsríki til dauða. Ísland er með í þessu dæmi ESB sem er á leiðinni í langdregið sársaukafullt sjálfsmorð. En gáfuðu konurnar á Íslandi hafa hengt landið í halarófuna á leiðinni ofan í hyldýpið.

Evrópusambandssinnarnir á Íslandi eru manískir sjálfpyndarar sem finnst gaman að kvelja sig og aðra með vinstri trúarstefnu um að himnaríkið sé í Brussel. Áður var himnaríkið í Moskvu en eftir að Reagan og Gorbatjov hittust í Reykjavík, þá þurfti að finnan því nýjan stað.

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra er í leynimakki með stallsystur sinni í Brussel, vondu lyginni, og verið er að tjaldabaki að slá kíl á milli Bandaríkjanna og Íslands. Þorgerður hefur skrifað upp á yfirlýsingu um varnarsamning bæði við ESB og Þýskaland af öllum löndum, sem er að byggja upp stærsta her í Evrópu eina ferðina enn. Gústaf Níelsson spyr:

„Ætla menn ekkert að læra af sögunni?”

Gústaf Níelsson er hress að vanda, einn af fáum sonum Íslands sem standa staðföstum fótum á arfi sögunnar, þar með talinni stjórnarskrá Íslands. Hann skoðar málin ætíð út frá hagsmunum almennings, þjóðarinnar og bendir á að mikilvægustu ákvarðanir samtímans eru teknar af stjórnmálaelítu sem ekki er að ráðfæra sig við almenning. Það á við á mörgum stöðum í Evrópu og einnig á Íslandi þar sem valkyrjur spinna vef ESB sem vill hrifsa til sín afraksturinn af lífsstriti hins venjulega Íslendings.

Það ljóta er reynslan af Helförinni sem margir virðast hafa gleymt eða vilja ekki líta til, þegar rætt er um vanda Ísrael í dag. Ljót dæmi frá Íslandi sýna að grunnt er á gyðingahatri og hryðjuverkamenn Hamas njóta meiri samúðar sumra en saklausir gyðingar.

Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlusta á þáttinn:

Fara efst á síðu