YouTube lokaði Swebbtv í Svíþjóð fyrir mörgum árum og skaðaði frjálsa umræðu í Svíþjóð verulega, þegar hundruð myndbanda Swebbtv hurfu skyndilega og sjónvarpið varð að finna aðrar rásir til að streyma viðtalsþáttum og fréttum sem stóru fjölmiðlarnir sögðu ekki frá. Stofnandi Swebbtv, Mikael Willgert, skrifar grein um málið sem birtist hér í lauslegri þýðingu.
Hversu langan tíma mun það taka áður en SVT biðst afsökunar á hlutdrægri umfjöllun sinni um Swebbtv?
Nú hefur SVT einnig verið afhjúpað fyrir að hafa klippt ræðu Trumps fyrir gönguna að þinghúsinu, sem hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Vonandi mun Trump einnig beina kastljósinu að sænska ríkissjónvarpinu með hótun sinni um milljarða dollara málsókn gegn BBC.
Það er líklega ekki djörf ágiskun að stjórnendur SVT séu pirraðir og að þeir séu farnir að hugsa um hver fær skömmina, þegar snaran dregst saman.
Í fréttaflutningi síðustu daga er augljóst að SVT hefur breytt um tón og vill sýnast opið fyrir því að svara gagnrýni sem kemur fram á samfélagsmiðlum. SVT skelfur vegna Donald Trump og Elon Musk.
En það er ekki bara Trump sem ríkisfjölmiðlarnir hafa atast illa í með falsklippingum og vinkluðum frásögnum. Sænska sjónvarpið SVT hefur við ýmis tækifæri kallað Swebbtv fyrir afneitara loftslagshlýnunar, rússneskt tröll, pútínista, afneitara bóluefna og þess háttar.
Þegar Google lokaði fyrir Swebbtv á YouTube, þá hafði Pontus Mattsson (fréttamaður SVT/GS) samband við okkur og vildi vita ástæðu lokunarinnar. Við útskýrðum aðstæður ítarlega og að Google hefði enga ástæðu til að loka rásinni. Þrátt fyrir þetta gaf Pontus Mattsson falska mynd um lokunina í frétt í Rapport. Matsson gaf í skyn að Swebbtv mælti með heimilisráðum sem meðferð við Covid og að við héldum því fram að bóluefnin hafi innihaldið örflögur. Hann gaf í skyn að Swebbtv væri ábyrgðarlaus rás sem stundaði hatursorðræðu.
Skoðanir okkar komu ekki fram í einu orði í frétt Matssons. Í staðinn varð hún að falskri frásögn án nokkurrar athugunar á því, hvort Google hafi haft rétt fyrir sér í ákvörðun sinni. Við fengum heldur ekki rými til andsvars.
Nú hefur Google beðist afsökunar á því að hafa tekið ranga ákvörðun þegar þeir lokuðu Swebbtv. Þeir hafa einnig endurreist upprunalegu YouTube rás Swebbtv.
Hversu langan tíma mun það taka áður en SVT biðst afsökunar á falskri umfjöllun um Swebbtv og lokun Google. Hér er tengill á frétt Pontusar Mattssonar um Swebbtv í fréttum SVT Rapport:
Hér er tengill á upprunalegu Swebbtv rásina á YouTube
