Í Kína eru menn „mjög klárir“ í að smíða og selja vindmyllur til vestrænna ríkja en nota þær ekki sjálfir. Donald Trump útskýrir þetta í viðtali við GB News (sjá að neðan).
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ræðir í nýju viðtali við breska GB News um loftslagsmálið. Hann þau mál algjört svindl:
„Talandi um loftslagið. Allt er svindl. Áður fyrr töluðu þeir um hlýnun jarðar. En það virkaði ekki. Vegna þess að það kólnaði. Fyrir mörgum árum kölluðu þeir það jafnvel kólnun jarðar. En það virkaði ekki. Svo núna kalla þeir það loftslagsbreytingar. Þá er ekki hægt að tapa.“
Samkvæmt Trump er Bretland eitt af verstu löndunum þegar kemur að þessu, sem „trúir á þetta rugl, þennan uppspuna.“
„Í Kína eru menn mjög sniðugir. Þeir selja vindmyllurnar. En í Kína sérðu næstum enga vindorku. Svo þeir smíða vindmyllurnar og selja þær til bjánanna, til fábjánanna en þeir nota þær ekki sjálfir. Þeir nota olíu og gas. Kol. En ekki vindorku.“
